156. löggjafarþing — 43. fundur,  15. maí 2025.

skipulag haf- og strandsvæða og skipulagslög.

147. mál
[12:55]
Horfa

Frsm. um.- og samgn. (Ása Berglind Hjálmarsdóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd umhverfis- og samgöngunefndar fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um skipulag haf- og strandsvæða og skipulagslögum (svæðisráð o.fl.). Frumvarpið felur í sér breytingar á lögum um skipulag haf- og strandsvæða, nr. 88/2018, annars vegar í ljósi reynslu af framkvæmd laganna og hins vegar vegna forsetaúrskurðar um skiptingu starfa ráðherra, en málefnið fellur nú undir félags- og húsnæðismálaráðherra. Meðal annars er lagt til að uppfæra fyrirkomulag við skipan og skipunartíma svæðisráða og skýra hlutverk Skipulagsstofnunar samkvæmt lögunum. Einnig er lögð til breyting á ákvæði til bráðabirgða II í skipulagslögum, nr. 123/2010, um að Skipulagssjóður kosti gerð strandsvæðisskipulags fyrir Eyjafjörð og Skjálfandaflóa, líkt og gert var vegna Vestfjarða og Austfjarða.

Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.

Með 3. gr. frumvarpsins er lögð til breyting á 2. mgr. 8. gr. laga um skipulag haf- og strandsvæða þess efnis að leyfisveitanda verði við afgreiðslu leyfa um framkvæmdir á haf- og strandsvæðum gert skylt að leita álits Skipulagsstofnunar telji hann vafa leika á um hvort slík leyfisveiting samræmist gildandi strandsvæðisskipulagi. Einnig verði lögfest heimild Skipulagsstofnunar til að hafa frumkvæði að slíkri athugun. Í þessu samhengi bendir Skipulagsstofnun á að í 1. mgr. ákvæðisins er kveðið á um skyldu leyfisveitenda til að senda stofnuninni upplýsingar um útgefin leyfi á haf- og strandsvæðum. Skipulagsstofnun leggur til að orðalag ákvæðisins verði gert skýrara og einnig komið á upplýsingaskyldu ráðuneyta sem gefi einnig út ýmis leyfi til framkvæmda eða starfsemi á þessum svæðum en með því fáist heildaryfirsýn yfir allar leyfisveitingar á haf- og strandsvæðum á vegum ráðuneyta og stofnana ríkisins. Jafnframt að tekin verði afstaða til þess hvort kveða eigi fastar að orði í 2. mgr. 8. gr. laganna um skyldu stofnana sem sjá um að framfylgja ákvæðum strandsvæðisskipulags og eru leyfisveitendur til samráðs við Skipulagsstofnun og viðeigandi svæðisráð.

Nefndin telur ekki tímabært að leggja til slíkar breytingar á 8. gr. laga um skipulag haf- og strandsvæða í ljósi þess að unnið er að heildarendurskoðun þeirra en beinir því til ráðuneytisins að fara yfir þessar athugasemdir Skipulagsstofnunar og leggja til viðeigandi lagabreytingar ef þörf er á.

Nefndin fjallaði einnig um ýmis atriði sem umsagnaraðilar telja mikilvægt að séu tekin til skoðunar eða kveðið á um í lögum um skipulag haf- og strandsvæða. Meðal annars var lagt til að hafin verði vinna við gerð strandsvæðisskipulags við Breiðafjörð, samhliða gerð strandsvæðisskipulags á Eyjafirði og á Skjálfanda en brýnt sé að leysa úr því hvar mörk verndarsvæðisins á Breiðafirði liggja, sbr. lög um vernd Breiðafjarðar, nr. 54/1995, vegna skörunar við ákvæði annarra lagabálka. Nefndin tekur undir þau sjónarmið og beinir því til ráðuneytisins að slík vinna verði hafin sem fyrst.

Þá kallar Minjastofnun eftir því að í lögum um menningarminjar, nr. 80/2012, verði kveðið á um skyldu til skráningar vegna skipulags haf- og strandsvæða, líkt og skylt er áður en gengið er frá aðalskipulagi, deiliskipulagi og raflínuskipulagi, sbr. 1. mgr. 16. gr. laganna. Þannig sé tryggt að hægt sé að taka upplýsta ákvörðun um hvernig standa skuli að framkvæmdum með hliðsjón af þeim menningarminjum sem eru skráðar á fyrirhuguðu framkvæmdasvæði áður en sótt er um leyfi vegna framkvæmda. Einnig kom fram sú afstaða að skipulag haf- og strandsvæða skuli vera á forræði sveitarfélaga og að ekki megi ganga inn á skipulagsvald þeirra. Því sé mikilvægt að það sé rætt m.a. við heildarendurskoðun á lögum um skipulag haf- og strandsvæða.

Nefndin hefur skilning á framangreindum sjónarmiðum en líkt og komið hefur verið inn á er unnið að heildarendurskoðun á lögum um skipulag haf- og strandsvæða í ráðuneytinu. Nefndin fagnar því að sú vinna sé í gangi og væntir þess að ráðuneytið taki mið af framangreindum ábendingum við þá endurskoðun.

Nefndin leggur til nokkrar breytingar á frumvarpinu: Í fyrsta lagi leggur nefndin til að 2. gr. frumvarpsins falli brott en með því ákvæði er lagt til að 4. málsliður 6. gr. laga um skipulag haf- og strandsvæða verði felldur brott. Í ákvæðinu eru taldar upp þær fagstofnanir sem skulu vera svæðisráðum og Skipulagsstofnun til ráðgjafar í málum sem falla undir gildissvið laganna. Í umsögnum þeirra fagstofnana sem bárust nefndinni er lagst gegn því að fella brott 4. málslið 6. gr. laganna enda hafi fagstofnanirnar yfirgripsmikla þekkingu á þeim málaflokkum sem þær fari með. Komið geti upp aðstæður þar sem ferst fyrir að fá fram sjónarmið ráðgefandi fagstofnana áður en endanlegar ákvarðanir eru teknar. Við meðferð málsins kom jafnframt fram að óskýrleiki um t.d. hvaða fagstofnanir og á hvaða stigi leyfisumsóknar þær skuli koma að málum geti lengt málsmeðferðartíma að óþörfu. Þá var mikilvægi samráðs leyfisveitenda og fagstofnana ítrekað. Auk þess var sérstaklega rætt um mikilvægi þess að í lögum sé að finna ákvæði er kveða á um öryggi sjófarenda og vernd siglingaleiða. Þetta sé ekki síst mikilvægt út frá öryggissjónarmiðum þar sem margar ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli skipulags um haf- og strandsvæði geti t.d. haft bein áhrif á siglingaöryggi.

Nefndin tekur undir framangreind sjónarmið og telur mikilvægt að skýrt sé hvaða fagstofnanir komi að ákvarðanatöku um málefni haf- og strandsvæða, ekki síst með vísan til öryggissjónarmiða. Sem fyrr segir leggur nefndin því til að 2. gr. frumvarpsins falli brott. Þá hvetur nefndin til þess að við heildarendurskoðun laga um skipulag haf- og strandsvæða verði lögð áhersla á að koma á formlegri umgjörð um hvernig standa skuli að samráði fagstofnana, til einföldunar og aukins gagnsæis bæði fyrir leyfisveitendur og fagstofnanir.

Í öðru lagi leggur nefndin til breytingu á 4. gr. frumvarpsins en með henni er lagt til að í 2. mgr. 10. gr. laga um skipulag haf- og strandsvæða verði kveðið skýrar á um að strandsvæðisskipulag skuli taka mið af annarri opinberri stefnumörkun og áætlanagerð sem hafi áhrif á nýtingu og vernd þessara svæða. Skipulagsstofnun bendir í umsögn sinni á ýmis atriði sem stofnunin telur mikilvægt að tekin séu til skoðunar í ljósi reynslu af framkvæmd laga um skipulag haf- og strandsvæða. Eitt þeirra er að tekin sé afstaða til þess hvort gera eigi kröfu um gerð ofanflóðamats við gerð strandsvæðisskipulags eða mat á hættu á slysasleppingum vegna ofanflóða á kvíar. Til dæmis sé í lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum, nr. 49/1997, ekki gert ráð fyrir áhættumati á slysasleppingum vegna ofanflóða á kvíar. Þá benda bæði Samgöngustofa, sem fer með siglingaöryggi, og Skipulagsstofnun á mikilvægi þess að gert sé ráð fyrir áhættumati siglinga við leyfisveitingar vegna sjókvíaeldis, auk þess sem slíkt ákvæði sé ekki að finna í lögum um vitamál, nr. 132/1999. Báðar stofnanir ítreka að þar sem ekki hafi verið gætt nægilega að afmörkun siglingaleiða og öryggi siglinga við gerð strandsvæðisskipulags á Austfjörðum og Vestfjörðum eigi eftir að leysa úr óvissu þar um. Þá ítrekar Landhelgisgæslan mikilvægi samráðs í tengslum við öryggi siglinga. Með 2. mgr. 10. gr. laganna var sérstaklega verið að hnykkja á því að við gerð strandsvæðisskipulags sé gætt að samræmi við lög þar sem tiltekin starfsemi er t.d. takmörkuð eða bönnuð. Í greinargerð frumvarpsins sem varð að lögum um skipulag haf- og strandsvæða, nr. 88/2018, er vísað til ýmissa laga og reglugerða sem átt geta við.

Nefndin tekur undir framangreindar athugasemdir Skipulagsstofnunar og Samgöngustofu og telur mikilvægt í ljósi þess að lögunum er ætlað að setja umgjörð um skipulag haf- og strandsvæða að hnykkt sé á því að taka skuli mið af lögbundnum ákvörðunum er varða öryggi siglinga og gæta verði að samráði við leyfisveitingar þegar kemur að áhrifum á notkun siglingaleiða. Nefndin leggur því til breytingu þess efnis.

Að lokum er í þriðja lagi lögð til breyting á 7. gr. frumvarpsins þar sem kveðið er á um breytingar á 15. gr. laga um skipulag haf og strandsvæða. Samkvæmt 5. gr. laganna skal ráðherra skipa eitt svæðisráð fyrir hvert svæði þar sem gera skal eða endurskoða strandsvæðisskipulag samkvæmt ákvæðum laganna. Vegna breyttrar verkaskiptingar innan Stjórnarráðsins er m.a. lagt til að ráðherra skipi átta fulltrúa í svæðisráð, þar á meðal þrjá samkvæmt tilnefningum ráðherra sem fara með umhverfis-, orku-, ferða-, fjarskipta-, samgöngu- og sjávarútvegsmál. Í 15. gr. laganna þar sem kveðið er á um heimild ráðherra til setningar reglugerðar er ekki tilvísun til ráðherra sem fer með fjarskiptamál, sbr. 1. gr. frumvarpsins. Til að gæta samræmis leggur nefndin því til breytingu á 7. gr. frumvarpsins þess efnis að bætt verði við 15. gr. laganna vísun til ráðherra sem fara með fjarskipta- og umhverfismál.

Vísast að öðru leyti til ítarlegri umfjöllunar um breytingartillögur í nefndarálitinu.

Að framansögðu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.

Undir nefndarálitið rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Guðbrandur Einarsson, Ingibjörg Davíðsdóttir, Anna María Jónsdóttir, Halla Hrund Logadóttir, Jens Garðar Helgason, Jónas Yngvi Ásgrímsson, Jónína Björk Óskarsdóttir og Ólafur Adolfsson.

Frú forseti. Samstarf í nefndinni var með mestu ágætum og langar mig að nota tilefnið til að þakka fyrir það.