greiðslur yfir landamæri í evrum.
Frú forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um greiðslur yfir landamæri í evrum. Frumvarpið felur í sér að innleitt verði í íslenskan rétt ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/1230 frá 14. júlí 2021 um greiðslur yfir landamæri í Sambandinu, kerfisbinding. Einnig er lagt til að ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 260/2012 frá 14. mars 2012 um að koma á tæknilegum og viðskiptalegum kröfum fyrir millifærslur fjármuna og beingreiðslur í evrum og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 924/2009 hafi áfram lagagildi.
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti og bárust henni nokkrar umsagnir og þau gögn eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Nefndin fjallaði um þá rýmkun á meginreglunni um jöfn gjöld á greiðslur yfir landamæri sem reglugerð (ESB) 2021/1230 kveður á um. Í því felst að gjöld fyrir greiðslur í evrum til annarra EES-ríkja skuli vera þau sömu og fyrir samsvarandi greiðslur innan lands í innlendum gjaldmiðli, en áður var aðeins miðað við samsvarandi greiðslur innan lands í evrum. Í greinargerð frumvarpsins er tekið fram að millifærslur innanlands í íslenskum krónum séu almennt án endurgjalds. Jafnframt segir að takmörkun á gjaldtöku vegna greiðslna yfir landamæri í evrum muni leiða til sparnaðar fyrir greiðendur en lækkunar á tekjum greiðsluþjónustuveitenda. Neytendasamtökin fögnuðu þessu í umsögn sinni. Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu tóku hins vegar fram í sinni umsögn að krafa um jafna gjaldtöku kunni að leiða til þess að greiðsluþjónustuveitendur endurskoði fyrirkomulag gjaldtöku fyrir millifærslur. Samtökin bentu á að kostnaður hér á landi við innlendar millifærslur og evrugreiðslur yfir landamæri sé mjög mismunandi andstætt því sem gerist á evrusvæðinu.
Þá fjallaði nefndin um gildistöku frumvarpsins. Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu vöktu athygli á vinnu sem aðilar fjármálakerfisins standi að um nýja rauntímamiðlun, NRM, sem miði að því að greiðslumiðlun hér á landi færist frá séríslensku fyrirkomulagi yfir í staðlað samskiptaform til samræmis við það sem tíðkast í Evrópu. Töldu samtökin að heppilegast væri að fresta ákvæðum frumvarpsins sem kveða á um jafna gjaldtöku þar til NRM-verkefninu lýkur.
Meiri hlutinn vísar til minnisblaðs fjármála- og efnahagsráðuneytis þar sem bent er á að frumvarpið kveði á um að reglugerð (ESB) 2021/1230 verði lögfest í heild sinn. Ekki sé gert ráð fyrir þeim möguleika að lögfesta að sinni aðeins afmarkaða hluta reglugerðarinnar. Jafnframt kemur fram að reglugerðin var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 170/2024 frá 5. júlí 2024. Meiri hlutinn tekur því undir þá afstöðu ráðuneytisins að Ísland sé þjóðréttarlega skuldbundið til að innleiða gerðina sem slíka.
Meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar leggur til breytingar á frumvarpinu. Í fyrsta lagi er lögð til breyting er varðar 4. gr. frumvarpsins. Þar er kveðið á um að Fjármálaeftirlitið geti lagt stjórnvaldssektir á greiðsluþjónustuveitanda sem brýtur gegn ákvæðum reglugerðar (ESB) 2021/1230 eða reglugerðar (ESB) nr. 260/2012. Seðlabanki Íslands gerði athugasemd við ákvæðið í umsögn sinni og taldi að það uppfyllti ekki kröfur sem verði að gera til skýrleika viðurlagaheimilda. Meiri hlutinn tók undir athugasemdina og leggur til breytinga á 4. gr. frumvarpsins þess efnis að ákvæði reglugerðanna sem varðað geta stjórnvaldssektum verði sérstaklega tilgreind.
Þá eru lagðar til tvær lagatæknilegar breytingar sem þarfnast ekki sérstakrar umfjöllunar.
Vísast að öðru leyti til ítarlegri umfjöllunar um breytingartillögur í áliti meirihluta efnahags- viðskiptanefndar.
Að framansögðu virtu leggur meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.
Undir álit meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Arna Lára Jónsdóttir, Ragnar Þór Ingólfsson, Sigmundur Ernir Rúnarsson og Sindri S. Kristjánsson.
Virðulegur forseti. Það er einnig rétt að benda á að með frumvarpinu er verið að bregðast við skuldbindingum Íslands samkvæmt EES-samningnum. Reglugerðin sem hér um ræðir var tekin upp í EES-samninginn sumarið 2024 og með því að lögfesta hana nú er verið að draga úr því sem stundum hefur verið kallað innleiðingarhalli, þ.e. það bil sem getur myndast milli þess sem við skuldbindum okkur á alþjóðavettvangi og þess sem raunverulega hefur verið innleitt í íslenskan rétt. Það er mikilvægt að við tökum slíkar skuldbindingar alvarlega og tryggjum að íslensk löggjöf haldist í takt við þróun á innri markaði Evrópu. Það stuðlar að réttaröryggi, jafnræði og trausti í samskiptum við önnur ríki og aðila innan EES. — Forseti. Ég hef lokið málinu.