156. löggjafarþing — 44. fundur,  19. maí 2025.

viðbrögð dómsmálaráðherra við gagnaleka.

[15:02]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Undanfarið hefur verið fjallað um ógnvekjandi lekamál sem snýr að stórfelldum trúnaðarbresti innan réttarkerfisins. Um er að ræða gögn sem tilheyra rannsóknarmálum sérstaks saksóknara, m.a. símhleranir, ljósmyndir og upptökur sem á einhvern hátt fóru í hendur einkaaðila. Í einhverjum tilvikum var lögregluvald beinlínis framselt til þessara sömu einkaaðila. Þessar upplýsingar virðast hafa verið hagnýttar í viðskiptalegum tilgangi árum saman af fyrrverandi starfsmönnum embættis sérstaks saksóknara. Margir þeirra sem urðu fyrir þessu höfðu ekkert til sakar unnið annað en að nýta rétt sinn til varnar fyrir dómstólum. Verulegur vafi leikur því ekki aðeins á því hvernig aðgerðirnar voru framkvæmdar og hver hafði aðgang að gögnunum heldur líka á því hvort þær hafi yfirhöfuð verið lögmætar. Viðbrögð dómsmálaráðherra hafa verið afdráttarlaus í orðum en ekki í aðgerðum. Vísað hefur verið til lögreglu, eftirlitsnefnda og embættis ríkissaksóknara sem hvert um sig hafa afar takmarkaðar heimildir til að skoða heildarmyndina af starfsháttum ákæruvaldsins eftir hrun og sumir voru jafnvel tengdir málinu þegar það átti sér stað. Þetta mál snýst um meira en þennan gagnaleka. Þetta snýst um traust ríkisins, um réttaröryggi borgaranna og um hvort ákæruvaldið hafi starfað með þeim hætti sem stjórnarskrá og mannréttindasáttmálar krefjast.

Þess vegna vil ég spyrja hæstv. dómsmálaráðherra: Telur ráðherra að ákæruvaldið og embætti sérstaks saksóknara hafi á sínum tíma farið að lögum? Ef ekki, hvers vegna hefur hún þá ekki þegar boðað sjálfstæða rannsókn? Og ef hún telur sig ekki þurfa að gera það, hvað þarf að gerast til þess að hún sjái tilefni til þess?