viðbrögð dómsmálaráðherra við gagnaleka.
Frú forseti. Ég myndi kannski vilja svara: Hvað þarf að gerast til að hv. þingmaður, formaður Sjálfstæðisflokksins, fylgist með störfum þingsins? Ég var hér í síðustu viku og upplýsti um afdráttarlausar aðgerðir mínar í þessu máli. Ég hef ekki látið mér nægja að vísa á einhverja aðila úti í bæ. Ég hef þá þegar óskað eftir upplýsingum í skriflegu erindi mínu til embættis héraðssaksóknara um lykilatriði í málinu. Ég hef óskað eftir upplýsingum frá héraðssaksóknara, þáverandi sérstökum saksóknara, um sex tiltekin atriði: Hvernig var vörslu gagna háttað? Hvernig var öryggi þeirra tryggt? Hver var aðgangsstýringin og voru gerðar ráðstafanir til að koma í veg fyrir misnotkun á aðgangi? Hvaða reglur giltu um eyðingu gagna? Hvenær var gögnum eytt? Giltu sérstakar reglur um gögn sem ekki töldust varða sakarefni máls?
Skilaboð mín eru skýr: Svona má ekki gerast og þegar svona gerist þá bregðumst við vitaskuld við. Það hefur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd gert. Ég var á fundi hjá þeim í morgun þar sem ég ræddi um mínar aðgerðir í þessu máli, átti góðan fund með þeirri nefnd sem ég sé að er að taka þessu verkefni alvarlega, rétt eins og sá ráðherra sem hér stendur. Það breytir ekki því að lögregla er að rannsaka þetta mál sem sakamál, að nefnd, sjálfstæð nefnd um eftirlit með störfum lögreglu, er að skoða þetta mál og Persónuvernd er að skoða þetta mál fyrir sitt leyti. Ég verð að segja að mér finnst með ólíkindum, hafi formaður Sjálfstæðisflokksins áhyggjur af þessu máli, að hún þekki ekki betur til þess. Ég hræðist ekki mínar yfirstjórnar- og eftirlitsheimildir og hef þá þegar beitt þeim. Það held ég að sé fyrsta svarið um þetta. Ég legg þunga áherslu á að þetta mál verði tekið til rannsóknar. Það hefur verið tekið til rannsóknar og ég hef beitt þeim verkefnum sem ég bý yfir í þeim tilgangi.