viðbrögð dómsmálaráðherra við gagnaleka.
Virðulegi forseti. Ég vil upplýsa þingheim um að ég hyggst leggja fram þingsályktunartillögu um að skipuð verði rannsóknarnefnd sem fari ofan í saumana á störfum embættis sérstaks saksóknara. Ég geri það ekki vegna einstaks atviks heldur vegna þess að það vantar heildstæða skoðun á því hvernig ákæruvaldið starfaði á þessum afdrifaríku árum eftir hrun. Dómsmálaráðherra virðist telja nægilegt að vísa í að málið sé nú til skoðunar hjá stofnunum sem hvorki hafa úrræði til né það hlutverk að leggja heildarmat á lögmæti þvingunaraðgerða, fagmennsku ákæruvaldsins eða mannréttindaverndar þeirra sem urðu fyrir aðgerðum ríkisvaldsins og það finnst mér ámælisvert.
Þess vegna spyr ég aftur hæstv. dómsmálaráðherra: Hvernig ætlar dómsmálaráðherra að endurheimta traust á réttarkerfinu þegar ákæruvaldið stendur sjálft undir grun og málið er látið í hendur stofnana sem voru hluti af þeirri framkvæmd sem nú er gagnrýnd? Telur ráðherra raunverulega (Forseti hringir.) að réttarkerfið geti metið sjálft sig án utanaðkomandi og sjálfstæðrar skoðunar?
Og að lokum vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Mun ráðherra (Forseti hringir.) styðja þingsályktunartillögu um rannsóknarnefnd?