156. löggjafarþing — 44. fundur,  19. maí 2025.

viðbrögð dómsmálaráðherra við gagnaleka.

[15:08]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Frú forseti. Ég nefndi hér áðan að ég tek yfirstjórnar- og eftirlitsheimildir mínar alvarlega. Við vorum á fyrsta fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar sem hefur hafið frumkvæðisrannsókn. Ég veit ekki hvort við séum að horfa upp á enn eitt dæmið um klofinn þingflokk Sjálfstæðisflokksins í þessari aðgerð, hvort í þessu felist vantraust á formann nefndarinnar, Vilhjálm Árnason, eða hvað hér er á seyði. Ég segi og endurtek það sem ég hef áður sagt: Ég tel mikilvægt að þessi tími verði gerður upp og að markmiðið þarna hljóti að vera að leiða í ljós hvað þarna átti sér stað og hvað þarna gerðist. Ég tel fulla ástæðu til að rýna það alvarlega hvort það sé ástæða til að skoða rannsóknarefni í þessu samhengi en ég beini því til þingmannsins að skoða lög um rannsóknarnefndir þingsins því að þar eru ákveðnar kríteríur hvað eigi að hafa átt sér stað áður en til þess kemur að slík nefnd verði stofnuð. Þingmanninum er vitaskuld heimilt að leggja fram tillögu um þetta og rýna það í allar áttir. Þar myndi ég fyrir mitt leyti líka vilja beina sjónum að því hverjir það voru sem voru að kaupa þessi gögn. Voru þeir í góðri trú? Það þarf að skoða alla anga málsins. Það er oft vísað í að það hafi verið ákveðið andrúmsloft í samfélaginu þegar dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins (Forseti hringir.) lagði til að við myndum stofna embætti sérstaks saksóknara. Ég tel líka mikilvægt núna (Forseti hringir.) að við höfum yfirvegun og ís í maga þegar við gerum þetta upp en séum ekki í yfirboði og pólitískum yfirlýsingum um jafn mikilvægt mál.