156. löggjafarþing — 44. fundur,  19. maí 2025.

skattahækkanir og gjöld.

[15:10]
Horfa

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Hæstv. ríkisstjórn, sem lofaði því að hækka ekki skatta á venjulegt fólk í aðdraganda kosninga, er strax á fyrstu mánuðum í miklum skattahækkunargír. Þær skattahækkanir sem átti þó að ráðast í og sem á einhvern hátt áttu alls ekki að bitna á venjulegu fólki, átti að taka í öruggum og rólegum skrefum. Það hefur lítið farið fyrir því loforði. Hér hafa einfaldlega stórfelldar skattahækkanir verið boðaðar, frumvörp lögð fram án samráðs, án gagna og án greininga í þeirri veiku von að fá aðeins fleiri aura í ríkiskassann. Hlutverk þingsins er að engu haft, lítill tími gefinn til að vinna málin og þingið virðist náðarsamlegast bara eiga að stimpla málin hér út fyrir sumarleyfi. Er nema von að spurt sé hvort þessi vinnubrögð, þessi asi, þessar stórfelldu skattahækkanir, séu fyrirboði fyrir næstu skref þessarar ríkisstjórnar og næstu ár.

Ég vil því spyrja hæstv. forsætisráðherra: Hvaða atvinnugrein liggur næst við höggi? Er það ferðaþjónustan? Er það óvenjulega fólkið? Hvaða skattahækkanir er ríkisstjórnin með uppi í erminni sem verið er að vinna að? Þá er kannski hægt að spyrja spurninga og afla gagna og velta upp meðan á sumarleyfi stendur.

Þó að stundum séu notuð önnur orð yfir þessar skattahækkanir; leiðrétting, gjöld og göt, til að forðast að kalla hlutina þeim nöfnum sem þeir heita, þá á það við um það allt. Ríkisstjórnin er a.m.k. strax byrjuð, leggur af samnýtingu skattþrepa, leggur til stórfellda hækkun veiðigjalda, leggur skatt á orkumannvirki með tilheyrandi hækkun á raforkuverði. Með hliðsjón af orðum hæstv. ráðherra um að skatta eigi ekki að hækka á venjulegt vinnandi fólk vil ég spyrja: Hvaða skattahækkanir koma næst? Hvers vegna þessi asi og afsláttur af faglegum vinnubrögðum þegar (Forseti hringir.) kemur að skattahækkunum? Síðast en ekki síst: Hverjir eru það sem falla undir það að teljast vera venjulegt fólk og hverjir ekki?