156. löggjafarþing — 44. fundur,  19. maí 2025.

skattahækkanir og gjöld.

[15:12]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Já, hér er verið að tala um skattahækkanir. Það er væntanlega verið að vísa til þeirra aðgerða sem ríkisstjórnin stendur fyllilega saman um, að hækka veiðigjöld í landinu. Þetta ætti ekki að koma neinum á óvart. Þetta var boðað hjá öllum þessum flokkum í aðdraganda kosninga. Hér getur fólk leikið sér að skilgreiningum, gjöld eða skattar, og þótt það ofboðslega gaman en staðreyndin er sú að umræddar hækkanir á veiðigjöldum eru hækkun á veiðigjöldum. Þau gjöld eru til að mynda frádráttarbær frá skatti sem er þá, ef fólk vill kalla það skatt, eini skatturinn sem er frádráttarbær frá sjálfum sér. Það liggur alveg fyrir að veiðigjöld eru ekki það sama og hefðbundinn skattur. Við getum alveg leyft okkur að ræða um þetta og einhvern veginn vaðið út með umræðuna í það en fólk á þá bara að ræða um málið sjálft sem er hvort fólki finnst sanngjarnt að núverandi fyrirkomulag sé með þeim hætti að mjög lítill hluti auðlindarentunnar sem hefur skapast í þessari grein renni til þess að styrkja landið í heild sinni. Og af hverju erum við að tala um venjulegt fólk? Jú, vegna þess að við viljum hafa skoðun á því hvernig við styrkjum innviði landsins til þess að við höfum m.a. fjármagn til að draga úr þeim skattahækkunum sem má kalla að hefur verið í formi skorts á innviðum, skorts á vegum, skorts á heilsugæslu, skorts á alls konar þjónustu sem er ekkert annað, ef fólk ætlar að vera í þessum skattaleik, en skattahækkanir á fólk, m.a. sem býr fyrir utan höfuðborgarsvæðið. Þannig að við getum notað skatta yfir ýmislegt sem við viljum en við megum líka alveg horfast í augu við það að hér er bara pólitík til staðar. Hún er misjöfn milli flokka. Síðasta ríkisstjórn hafði engan áhuga á öðru en að lækka veiðigjöld, sem er það sem hún gerði á þeim árum sem hún var hér. Þessi ríkisstjórn vill skila meiri rentu inn í almannainnviði í landinu og við erum alveg til í að standa frammi fyrir því.