skattahækkanir og gjöld.
Virðulegi forseti. Hæstv. ráðherra virðist ekki geta svarað spurningunni, vill bara ræða um veiðigjöldin og vera með réttlætið á sínum höndum þegar að því kemur. Hér er líka farið í mikinn orðaleik um hvað séu skattahækkanir á venjulegt fólk. Hæstv. ráðherra virðist ósammála hæstv. atvinnuvegaráðherra því að það sem kemur fram í frumvarpinu um hækkun veiðigjalda er að það er skattur, bæði samkvæmt Hæstarétti, samkvæmt stjórnarskránni og samkvæmt því frumvarpi sem liggur fyrir frá hæstv. atvinnuvegaráðherra. En það er auðvitað líka hjákátlegt að hæstv. ráðherrar þessarar ríkisstjórnar höfðu miklar áhyggjur af stýrivöxtum á síðasta kjörtímabili á sama tíma og núverandi ríkisstjórn gerir allt í sínu valdi til að stöðva vaxtalækkunarferlið. Verðbólgan virðist pikkföst og ég spyr bara hvernig þetta fari saman við orðaleiki hæstv. forsætisráðherra um hvað séu skattar á venjulegt og vinnandi fólk, eins og orðað er. Maður veltir fyrir sér hvort hæstv. forsætisráðherra hafi týnt sleggjunni strax á fyrstu mánuðunum (Forseti hringir.) og hvort markmiðið um efnahagslegan stöðugleika hafi einfaldlega bara vikið fyrir fokdýrum loforðum Flokks fólksins.