skattahækkanir og gjöld.
Frú forseti. Síðasta ríkisstjórn ákvað að fara þá leið, ef fólk vill tala um skatta og hvað eigi að skilgreina sem skattahækkanir, að brjóta verðbólguna aftur á bakinu á, já, venjulegu fólki í landinu með því að stuðla að ójafnvægi í ríkisrekstrinum, með því að vera ekki tilbúin að horfa til tekna eða mögulega sparnaðar í útgjöldum og gera það að verkum að hvergi á tímabili þeirrar fjármálaáætlunar sem síðasta ríkisstjórn stóð frammi fyrir og bar ábyrgð á var ætlunin að ná fram hallalausum fjárlögum. Ég veit ekki betur en að það sé besti mælikvarðinn á fókus þessarar ríkisstjórnar að við stefnum að því að vera með hallalaus fjárlög 2027. Og það krefst erfiðra aðgerða, já, á gjaldahlið en líka á tekjuhlið. Hvað varðar verðbólguna: Vextir hafa lækkað um 1,5% frá því að þessi ríkisstjórn tók við — 1,5%. Við auðvitað stýrum ekki öllu frekar en síðasta ríkisstjórn gerði þegar kemur að ytri aðstæðum en við verðum auðvitað bara spyrja að leikslokum. Við erum að gera allt sem í valdi okkar er til að ná tökum á þessari stöðu, m.a. með því að vera skynsöm í ríkisfjármálum. Eins og ég segi, það segir allt sem segja þarf að við erum að stefna að hallalausum fjárlögum árið 2027.