lögreglustjórinn á Suðurnesjum.
Frú forseti. Hæstv. ráðherra talar mikið um stefnu Miðflokksins. Það er reyndar gott og mætti margt af því læra en maður er engu nær eftir þetta svar hæstv. dómsmálaráðherra. Það hlýtur að vekja athygli hér í þessari umræðu þegar hæstv. ráðherra er inntur eftir ástæðum þess að lögreglustjórinn á Suðurnesjum er rekinn úr starfi en það fást engar viðhlítandi skýringar. Hæstv. ráðherra hefur ekki gefið neinar fullnægjandi skýringar á tilefni þessa brottrekstrar — engar. Jú, það hefur komið fram að hún hafi boðið honum starf á Austurlandi. Átti sem sagt að senda lögreglustjórann í einhvern Lokinhamradal þar sem hæstv. ráðherra Viðreisnar gat ekki þolað að landamæraeftirliti eyþjóðarinnar væri sinnt af einhverri vigt á þessum mikilvægustu landamærum landsins? Þetta vekur auðvitað upp alvarlegar spurningar um stefnu Viðreisnar í þessum málaflokki. Þessi brottrekstur á þessum embættismanni er ekki til þess fallinn að vekja traust á stefnu Viðreisnar og ráðherrans í þessum málaflokki og flokkast frekar undir pólitískt sjálfsmark. Því er ekki úr vegi að spyrja hæstv. ráðherra hér í síðara andsvari hvenær hún hyggst auglýsa (Forseti hringir.) stöðu lögreglustjórans á Suðurnesjum. Núna fljótlega, eftir að frumvarp ráðherra um breytingu á embættinu hafa verið samþykktar á þingi, og þá liggi það fyrir hverjir nákvæmlega verður breytt þarna suður frá?