156. löggjafarþing — 44. fundur,  19. maí 2025.

stuðningur við íslenska matvælaframleiðslu.

[15:25]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F):

Virðulegi forseti. Ferskir tómatar, grillkjöt á grillið, bleikja beint frá býli. Allt eru þetta hlutir sem við elskum og höfum kannski hugsað mikið um, ekki síst núna undanfarna daga í sólinni. Við erum að tala um íslenskan landbúnað í sinni fjölbreyttustu mynd, matvælaframleiðsluna sem okkur þykir öllum svo vænt um. Öflug matvælaframleiðsla hér á landi er ekki bara samofin menningu okkar. Hún er hluti af þjóðaröryggisstefnu okkar. Hún er hluti af lýðheilsumarkmiðum. Við notum hér græna orku, við notum minna af sýklalyfjum. Hún er líka hluti af nýsköpun og verðmætasköpun og svo er hún líka hluti af framtíðarsýn í ferðaþjónustu því að fólk ferðast til að fá öfluga og góða matvöru, upplifa matarmenningu þjóða. Allt er þetta undir þegar við horfum á matvælaframleiðsluna okkar en samt erum við að grafa undan henni. Við erum að grafa undan matvælaiðnaði með hækkandi raforkuverði og við vitum að þó svo að mörg leyfi hafi verið veitt fyrir nýjum virkjunum og ýmislegt sé verið að gera kemur sú framleiðsla ekki inn á kerfið fyrr en eftir þetta kjörtímabil. Það setur alla þessa ólíku matvælaframleiðendur í erfiða stöðu.

Hæstv. ráðherra fór í þá jákvæðu aðgerð, tók það jákvæða skref, að veita einskiptisstyrki til garðyrkjubænda. En ég vil í ljósi þess að við erum að tala hér um tímabundið ástand sem getur varað í nokkuð mörg ár — hyggst hæstv. orkumálaráðherra beita sér á þann veg að styðja matvælaframleiðendur í landinu, íslenskan landbúnað, enn frekar, t.d. með því að horfa til þess að við séum að veita styrki sem snúa að framleiðslu aðilanna sjálfra, svo sem í gegnum sólarorku eða aðrar leiðir? Eða hvaða tímabundnu aðgerðum hyggst ráðherra beita sér fyrir?