umhverfismat framkvæmda og áætlana.
Virðulegur forseti. Hér erum við að ræða margumtalaða gullhúðun í íslenskri löggjöf og frumvarp frá fyrrverandi ráðherra sem tekur einmitt á þessum málum. Það er gott og vel og við Sjálfstæðismenn styðjum þetta mál að sjálfsögðu. En í umsögnum um frumvarpið, m.a. frá Landsvirkjun, koma fram ábendingar um nokkur atriði sem er í sjálfu sér ekki flókið að breyta og væri nú í anda verkstjórnarinnar að láta til sín taka í því og betrumbæta þetta mál og styrkja það þannig að við gætum tekið áhrifameiri skref við þessa breytingu. Það eru oft litlu skrefin sem vigta ekkert síður þungt heldur en þau stærri. Á þeirri forsendu, virðulegur forseti, legg ég til að þetta mál fari til nefndar milli umræðna og að menn vinni með þær tillögur sem m.a. koma fram í umsögn Landsvirkjunar.