156. löggjafarþing — 44. fundur,  19. maí 2025.

umhverfismat framkvæmda og áætlana.

129. mál
[15:40]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég vil bara nota tækifærið og þakka hv. þingnefnd fyrir að koma með málið á þennan stað og ég vona að það klárist. Það á sér mjög langan aðdraganda og mikil vinna hefur verið unnin af sömu manneskju og skrifaði skýrsluna um gullhúðun að beiðni hv. þm. Diljár Mistar Einarsdóttur. Þetta er nokkuð sem ég vann ekki bara að sem ráðherra í síðasta ráðuneyti heldur líka í utanríkisráðuneytinu. Það er náttúrlega mjög alvarlegt mál að við höfum verið að stunda gullhúðun í landinu. Núna erum við vonandi að stíga fyrstu skrefin í að afhúða en það átti sér langan aðdraganda. Ég tek síðan undir með hv. þm. Jóni Gunnarssyni að það er skynsamlegt að fara dýpra í þetta. Ef hægt væri að betrumbæta þetta mál þá eiga menn að gera slíkt því að það er mikið verk að vinna í afhúðun og sú vinna er hafin. En það má ekki gefa neitt eftir og það þarf að halda því áfram og hreinsa þetta upp.