156. löggjafarþing — 44. fundur,  19. maí 2025.

landlæknir og lýðheilsa o.fl.

2. mál
[15:52]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég kem hér upp til að þakka þinginu og nefndinni fyrir að afgreiða þetta mál hratt og vel. Þetta er gott mál sem á uppruna sinn hjá fyrri ríkisstjórn, fyrrum heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórssyni, sem lagði áherslu á lýðheilsu. Við í Framsókn styðjum þetta mál, ég vil bara koma hér upp og útskýra það.