156. löggjafarþing — 44. fundur,  19. maí 2025.

landlæknir og lýðheilsa o.fl.

2. mál
[15:53]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Eins og kom fram í ræðu minni á fimmtudagskvöldið varðandi þetta mál þá höfum við, þingflokkur Sjálfstæðisflokksins, fyrirvara við þetta mál. Það er mikilvægt að halda vel um gögn sem tengjast framkvæmd heilbrigðisþjónustu enda verið að höndla með heilsu og líf fólks. Ekki er þó síður mikilvægt að tilgangurinn og markmiðið sé skýrt, það sé sannarlega verið að safna gögnum sem skipta máli og nota þau gögn til að meta árangur og gæði veittrar heilbrigðisþjónustu. Í frumvarpinu eru taldar upp 12 heilbrigðisskrár sem má vel vera að séu mikilvægar en það eru ekki nöfn skránna sem skipta máli heldur gögnin sem eiga að vera í þessum skrám. Það kemur hvergi fram í frumvarpinu hvaða gögn það eru sem eiga að vera í þessum skrám þannig að í raun hefur landlæknir ótakmarkað umboð til að óska eftir hvaða gögnum sem er frá veitendum heilbrigðisþjónustu svo lengi sem það er hægt að koma þeim fyrir í þessum skrám. Annars vísa ég bara í umræðu hér á fimmtudagskvöldið sem snýr að þessu máli og þeirri ræðu.