156. löggjafarþing — 44. fundur,  19. maí 2025.

aðgerðaáætlun gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis fyrir árin 2025--2029.

87. mál
[15:56]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég fagna því sérstaklega að þetta mál sé komið hér fram og í atkvæðagreiðslu, aðgerðaáætlun um sýklalyfjaónæmi eins og við þekkjum, sem er vá framtíðarinnar og jafnvel nútímans fyrir mannkyn allt, skiptir miklu máli í dýrahaldi og samspili dýrahalds og okkar mannanna hér á jörðinni. Við á Íslandi stöndum okkur frábærlega vel, ekki síst hvað varðar dýrahald og sýklalyfjanotkun þar. Við gætum tekið okkur á þegar kemur að okkur sjálfum, fólkinu, og verið skarpari þar. Þetta mál höfum við talað fyrir í Framsókn í mjög langan tíma. Þetta mál á líka uppruna sinn frá fyrri ríkisstjórn og fyrrum heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórssyni, sem lagði mikla áherslu á þetta. Gallinn við þetta mál er hins vegar sá að það vantar skýra fjármögnun á þessar tilteknu aðgerðir. Þar skora ég á nýja stjórn og stjórnarmeirihlutann að gera gangskör í því að tryggja að þeir fjármunir fáist því að ellegar verður minna um aðgerðir, en við í Framsókn styðjum að sjálfsögðu þetta mál.