156. löggjafarþing — 45. fundur,  19. maí 2025.

atvinnuréttindi kvenna að loknu fæðingarorlofi.

193. mál
[16:01]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Diljá Mist Einarsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Sú sem hér stendur lagði fram samhljóða fyrirspurn til skriflegs svars til þáverandi ráðherra á síðasta kjörtímabili. Fyrirspurnin var lögð fram í kjölfar þess að ung kona steig fram og greindi frá því að henni hefði verið boðin lægri staða og lægri laun hjá opinberri stofnun eftir að hún sneri aftur til vinnu úr fæðingarorlofi. Í frásögn konunnar kom fram að hún hefði eignast tvö börn með stuttu millibili en þegar hún stefndi að endurkomu eftir fæðingarorlof var henni síður en svo tekið opnum örmum. Henni stóð þá til boða að taka við nýju starfi af lægri tign og lækka þar með um tvo launaflokka. Ég þóttist vita að saga þessarar konu væri ekki einsdæmi enda hef ég svoleiðis margoft heyrt svipaða sögu frá vinkonum og kunningjakonum, sögur eins og þessa, sögur af atvinnuviðtölum þar sem konur eru spurðar úti í barneignir og fjölskylduplön, stundum undir rós en stundum jafnvel ekki. Það er grafalvarlegt að þetta skuli viðgangast og auðvitað lögbrot en auk þess eru þetta ömurleg viðhorf til kvenna á vinnumarkaði.

Virðulegi forseti. Ég vildi því fá að vita hvort þáverandi ráðherra teldi atvinnuréttindi kvenna eftir fæðingarorlof nægilega tryggð í lögum. Stutta svar þess ráðherra var að löggjöfin væri alveg skýr um það að foreldrar skyldu ekki missa réttindi á vinnumarkaði vegna töku fæðingarorlofs. Nú hef ég sem sagt áhuga á að vita hug nýs hæstv. hæstv. ráðherra til þessa umræðuefnis, til stöðu kvenna á vinnumarkaði að loknu fæðingarorlofi. Ef til vill kemur hæstv. ráðherra hér upp og þylur upp sömu rök og forveri hennar, um öll ákvæðin í fæðingarorlofslögunum og um jafnréttislöggjöfina. En hvað skýrir þá þessa framkvæmd sem ég hef farið hér yfir, m.a. hjá opinberum stofnunum eins og í því tilviki sem ég hef farið hér yfir. Ætlar hæstv. ráðherra að beita sér með einhverjum hætti ef henni þykir þá tilefni til?