156. löggjafarþing — 45. fundur,  19. maí 2025.

atvinnuréttindi kvenna að loknu fæðingarorlofi.

193. mál
[16:04]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir sína skeleggu framgöngu hingað til sem endranær, ef ég veit nú hvað ég er að fara að segja. Hv. þingmaður spyr mig hvort það sé mat ráðherra að atvinnuréttindi kvenna sem snúa til vinnu að loknu fæðingarorlofi séu nægilega tryggð í lögum annars vegar og hins vegar spyr hv. þingmaður hvað ráðherrann hyggist ætla að gera í því ef svo er ekki.

Um réttindi kvenna sem snúa aftur til vinnu að loknu fæðingarorlofi er m.a. fjallað í lögum nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof. Já, frú forseti, ég býst við að þetta sé eitthvað í takti við það svar sem hv. þingmaður fékk frá fyrirrennara mínum, þótt ég eigi kannski aðeins eftir að sveifla mér svona pínulítið út úr mynstrinu þegar lengra líður, en við skulum taka það sem rétt er, hvernig lögin eru raunverulega byggð upp og markmiðið með þeim. Í því sambandi má nefna að skv. 40. gr. laganna þá reiknast fæðingarorlof til starfstíma við mat á starfstengdum réttindum, svo sem rétti til orlofstöku og lengingar orlofs samkvæmt kjarasamningum, starfsaldurshækkana, veikindaréttar, uppsagnarfrests og atvinnuleysisbóta en ekki er um tæmandi talningu að ræða í ákvæðinu.

Það kemur hins vegar fram í 49. gr. laganna að ráðningarsamband milli starfsmanns og vinnuveitanda skuli haldast óbreytt í fæðingar- og foreldraorlofi og að starfsmaður eigi rétt á að hverfa aftur til starfa sinna að loknu fæðingar- eða foreldraorlofi. Sé þess ekki kostur þá skuli hann eiga rétt á sambærilegu starfi hjá vinnuveitanda í samræmi við ráðningarsamning.

Þá kemur fram í 51. gr. laganna að komi vinnuveitandi í veg fyrir að foreldri njóti þeirra réttinda sem því ber samkvæmt lögunum þá varði það skaðabótaskyldu samkvæmt almennum reglum.

Foreldrar sem nýta rétt sinn til fæðingarorlofs njóta jafnframt tiltekinnar uppsagnarverndar en skv. 50. gr. fyrrnefndra laga um fæðingar- og foreldraorlof þá er algerlega óheimilt að segja starfsmanni upp störfum, t.d. á grundvelli þess að hann hafi tilkynnt um fyrirhugaða töku fæðingar- eða foreldraorlofs eða sé í fæðingar- og foreldraorlofi, nema gildar ástæður séu fyrir hendi og skal þá skriflegur rökstuðningur fylgja því uppsagnarferli.

Hið sama gildir um uppsagnir barnshafandi starfsmanns og starfsmanns sem nýlega hefur fætt barn en samkvæmt lögum nr. 27/2000, um bann við uppsögnum vegna fjölskylduábyrgðar starfsmanna, er óheimilt að segja manni upp störfum eingöngu vegna fjölskylduábyrgðar sem hann ber. Með fjölskylduábyrgð samkvæmt lögunum er m.a. átt við skyldur starfsmanns gagnvart börnum sínum. Ég ætla kannski ekki alveg að fara lengra í lagaflækjurnar hérna.

Ég ætla sérstaklega að taka utan um það sem hv. þingmaður kemur inn á hér, hvernig jafnvel stjórnsýslan sjálf og opinberar stofnanir ganga fram gagnvart mæðrum sem hafa tekið fæðingarorlof og eru að snúa aftur til starfa sinna, sem mér finnst í rauninni alveg skelfilegt að hlýða á. En þó að löggjöfin sé skýr um það að þeir sem eignast börn og fara í fæðingarorlof skuli ekki missa vinnu sína þá eru nákvæmlega þessi dæmi til staðar, eins og hv. þingmaður er réttilega að benda á, sem segir einfaldlega að lögin eru þverbrotin á þeim einstaklingum.

Þannig að það er í rauninni líka viðvarandi verkefni okkar stjórnvalda t.d. að koma í veg fyrir að fólk á barneignaraldri sé jafnvel ekki ráðið í vinnu þar sem í rauninni sumir atvinnurekendur ráða hreinlega ekki fólk sem þeir halda að verði komið í fæðingarorlof innan skamms. En það mun ekki standa á mér og mínu ráðuneyti að grípa til aðgerða og sporna gegn slíkri mismunun sem hv. þingmaður réttilega bendir á og lögin verða að hafa fælingarmátt svo að þau virki.

Þannig að til hvaða ráða eigum við að grípa, hv. þingmaður? Ég er ósátt við hve reglulega það virðist gerast að atvinnurekendur brjóti gegn skýrum ákvæðum laga um bann við t.d. uppsögnum vegna fæðingarorlofs og jafnframt þá mismunun sem virðist viðgangast þegar kemur að ráðningum og uppsögnum gagnvart fjölskyldufólki sem þykir líklegt til barneigna. Það jákvæða er að flestir atvinnurekendur gleðjast sem betur fer með launþegum sínum þegar þau eignast börn. Þau óska þeim til hamingju og bjóða þau velkomin til starfa á ný að lokinni fæðingarorlofstöku. Það er hins vegar vitað til að hér eru örfáir svartir sauðir sem kasta rýrð á alla hina.

Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir mjög góða fyrirspurn og hún getur treyst því að ég tek málið alvarlega og læt það virkilega til mín taka og enn betra væri að fá að vita hvaða opinberar stofnanir það eru sem ganga svo freklega fram sem hv. þingmaður tíundaði hér í framsögu sinni áðan.