156. löggjafarþing — 45. fundur,  19. maí 2025.

atvinnuréttindi kvenna að loknu fæðingarorlofi.

193. mál
[16:09]
Horfa

Diljá Ámundadóttir Zoega (V):

Forseti. Ég þakka nöfnu minni hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir mikilvæga fyrirspurn og ráðherra fyrir gott svar. Samkvæmt rannsóknum Vörðu – rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins, um konur á vinnumarkaði, ríkir ójöfnuður meðal kvenna á vinnumarkaði hér á landi og hann á sér margs konar birtingarmyndir. Ég ætla að beina sjónum að þeim niðurstöðum rannsóknarinnar sem benda á að um 40% mæðra í sambúð eða hjónabandi telja andlega heilsu sína slæma og rúmlega 50% einstæðra mæðra telja andlega heilsu sína mjög slæma. Hér er þá ekki verið að tala um mæður sem eiga börn með langvinn veikindi eða fatlanir en þar er ástandið talsvert alvarlegra. Meðal annarra þátta er hægt að rekja þessa svörun mæðranna til álags og streitu sem myndast þegar verið er að flétta saman fjölskylduábyrgð og atvinnuþátttöku. Streita er talin vera einn helsti áhættuþáttur og ógn við heilsu hvers og eins.

Ég er þeirrar skoðunar að það þurfi að leita leiða (Forseti hringir.) og byggja upp kerfi sem verndar þennan hóp frá álagi og streitu frekar en að auka ógn um að öryggi þeirra og réttindi verði brotin vegna geðþóttaákvarðana atvinnurekenda.