156. löggjafarþing — 45. fundur,  19. maí 2025.

atvinnuréttindi kvenna að loknu fæðingarorlofi.

193. mál
[16:10]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir að taka þetta mikilvæga mál hér upp. Fæðingarorlofslöggjöfin og fæðingarorlofið er gríðarlega mikilvægt mál fyrir hag og heilsu barnanna, að tryggja að barnið njóti návistar foreldra sinna. En þessi mál eru um leið mjög mikilvægt jafnréttistæki. Þar komum við einmitt inn á það að við þurfum að tryggja jafnrétti í þessu. Það verður ekki gert, eins og lagt var upp með í síðustu breytingum á fæðingarorlofslöggjöfinni, með því að skilgreina mánuðina sem hvort foreldri má taka, heldur verður að tryggja fullt frelsi fyrir foreldra til að taka þetta. Það jafnar stöðuna. Ef lágmarksgreiðslan verður hækkuð og það verður gefið aukið frelsi í því hvernig mánuðunum er skipt minnkar þessi togstreita og þá geta atvinnurekendur ekki heldur gengið út frá því að það sé bara (Forseti hringir.) annað foreldrið sem tekur fæðingarorlofið eins og raunin virðist því miður vera núna.