atvinnuréttindi kvenna að loknu fæðingarorlofi.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka bæði hv. fyrirspyrjanda sem og hæstv. ráðherra. Það þarf ekkert að fara yfir aðdraganda málsins, mikilvægi þess og alvarleika. Áhyggjur mínar eru þessar: Mér fundust svör hæstv. ráðherra ekki vera mjög skýr, hvað ráðuneytið ætlar að gera, hvað hæstv. ráðherra ætlar að gera. Það kom fram hjá fyrirspyrjanda að þetta er annar hæstv. ráðherra sem hv. þingmaður spyr um málið, vekur athygli á því. Ég held að það sé enginn hv. þingmaður hér í salnum sem er ekki sammála því að þarna er um alvarlegt mál að ræða. Hér er um það að ræða að opinberar stofnanir eru að brjóta lög. Og hvað? (Félmrh.: Heyrðirðu ekki í mér?) Ég hlustaði eftir því hvað hæstv. ráðherra sagði og mér fannst það alls ekki skýrt hvað á að gera. Það eru yfirlýsingar um góðan hug og ég fagna því. Nú liggur þetta fyrir og er búið að liggja fyrir lengi: Hvað á að gera?