atvinnuréttindi kvenna að loknu fæðingarorlofi.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir innleggið og sérstaklega þeim hv. þingmönnum sem hafa tekið þátt í umræðunni. Ég þakka sérstaklega áhugavert innlegg frá nöfnu minni, hv. þm. Diljá Ámundadóttur. Ég var ánægðari með seinni hlutann frá hæstv. ráðherra, sérstaklega yfirlýsingu um að hún myndi láta til sín taka. Ég geri ráð fyrir því að fylgja því eftir hér í þinginu því að eins og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson kom inn á er þetta í annað skipti sem ég legg fyrirspurnina fram og ég missi ekki heldur af góðu tækifæri til samtals og samstarfs við hæstv. ráðherra. En staðan eins og ég hef lýst henni í dag er óboðleg. Mæður taka almennt talsvert lengri aðlögun en feður og geta líka þurft að hverfa fyrr af vinnumarkaði á meðgöngu. Frjósemi íslenskra kvenna heldur áfram að minnka og meðalaldur mæðra að hækka. Ég tala fyrir sjálfa mig og tel mig líka tala fyrir margar kynsystur mínar þegar ég segi að viðhorf til kvenna á vinnumarkaði skiptir gríðarlega miklu máli. Við viljum gjarnan halda árangri okkar í jafnréttismálum á lofti og þar nefnum við fæðingarorlofsréttindi. Við konur göngum sannarlega enn með börn og fæðum þau og við viljum ekki að samfélagið okkar deyi út.
Að lokum kalla ég eftir því að við öxlum raunverulega ábyrgð á því að konur mæti fornfálegum viðhorfum á vinnumarkaði, ábyrgð okkar stjórnmálamanna en ekki síður ábyrgð atvinnurekenda, bæði á einkamarkaði og opinbera markaðnum.