kostnaður vegna einstaklinga sem hafa sótt um eða fengið alþjóðlega vernd.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir alveg frábæra fyrirspurn. Ég verð að segja að það sem þessi hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra er að leggja sig í líma við að gera er að reyna að vinda ofan af því ófremdarástandi sem Sjálfstæðisflokknum og fráfarandi ríkisstjórn tókst að koma í skrúfuna í heil sjö ár. En á sama tíma ætla ég að segja að það er ekki hægt að koma hér í pólitísku argaþrasi og ætla að slengja, eins og ég geri hér og nú, allri ábyrgð á fráfarandi ríkisstjórn. Það er bara ekki hægt. Þrátt fyrir að hægt hefði verið að vinda betur ofan af hlutunum þá er staðreyndin einfaldlega sú að við fengum í fangið algerlega fordæmalausan fjölda einstaklinga sem sótti hér um alþjóðlega vernd og það lenti í fanginu á þáverandi ríkisstjórn. Ég ætla því ekki að vera ósanngjörn og segja að ástandið sé svona svakalega slæmt af því að þeir aðilar sem þurftu að taka á þessum erfiða málaflokki á undan okkur hafi komið því í skrúfuna eins og ég gaf í skyn fyrr. Það er bara ekki þannig. Þetta var risaverkefni og sanngjarnt skal það vera: Þetta var algjörlega nýtt, það var verið að setja plástur á sárin hér og hvar til að reyna að taka utan um málaflokk sem við réðum í raun ekkert við.
Hv. þingmaður er að spyrja mig til hvaða ráðstafana ég hyggist grípa til að draga úr kostnaði sem kemur til vegna einstaklinga sem hafa sótt um og fengið alþjóðlega vernd. Svo spyr hv. þingmaður einnig til hvaða ráðstafana ráðherra hyggist grípa í framhaldinu. Í fyrsta lagi þá er stutta svarið: Jú, sú sem hér stendur hyggst svo sannarlega gera allt sem hún getur til að lækka umræddan kostnað sem fellur undir málefnasvið félags- og húsnæðismálaráðuneytisins. En auðvitað fellur ekki allur kostnaður vegna málaflokksins undir það ráðuneyti eins og hv. þingmaður veit. Þegar er hafin vinna við þetta verkefni, Vinnumálastofnun er t.d. að leita leiða til að hagræða þegar kemur að þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd. Í því sambandi vil ég sérstaklega nefna þá stefnu stofnunarinnar að reka færri frekar en stærri búsetuúrræði sem geta hýst aukinn fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd, en þetta gerir stofnunin í því skyni að einfalda alla umgjörð í tengslum við þá þjónustu sem umræddir einstaklingar eiga rétt á lögum samkvæmt.
Ég ætla ekki að lesa þessa ræðu meira. Ég ætla einfaldlega að benda á þá stöðu sem við erum að glíma við í dag. Við erum að koma hér upp þannig aðstöðu á landamærunum að það lítur út fyrir að hefði fráfarandi ríkisstjórn auðnast sú gifta að geta tekist á við málaflokkinn á landamærunum hefðum við aldrei fengið þessa svakalega yfirgripsmiklu holskeflu í fangið, að fá hér ríflega 4.000 hælisleitendur á einu og sama árinu og það tvö ár í röð. Það var í raun ekki vinnandi vegur þannig að ég ætla ekki að kenna þeim um það. En það eru úrræði. Við erum að koma með brottfararbúðir, komubúðir. Við erum að taka á landamærunum þannig að það mun verða mun færra fólk sem streymir hér inn og bíður hér árum saman eftir að fá úrlausn sinna mála hjá Útlendingastofnun. Það hefur í raun verið algjör akkillesarhæll hve illa okkur hefur gengið að vera með skilvirkni í því að afgreiða mál einstaklinga sem sækja hér um alþjóðlega vernd. Það er algjör grundvallarbreyting hjá þessari ríkisstjórn hvað þetta varðar. Það liggur líka algjörlega fyrir að þeim einstaklingum sem eru að óska hér eftir alþjóðlegri vernd hefur stórlega fækkað þannig að það er í raun og veru sjálfdregið úr þessu mikla álagi, það gerist í rauninni af sjálfu sér.
Ég held að það sem við þurfum að gera hér, við sem kjörnir fulltrúar, hvort heldur hv. þingmenn eða hæstv. ráðherrar, sé einfaldlega að taka saman höndum og standa að því að koma með skilvirkni og fylgja því fast eftir að gera það saman. Við höfum tekist á við þetta saman síðan við fengum þessa holskeflu í fangið. Það er líka alveg rétt hjá hv. þingmanni, það var mismunandi ásýnd á því … [Þingmaður færir ræðumanni vatn.] — Þakka þér fyrir hv. þingmaður. Það var líka mismunandi ásýnd á því hvernig stjórnarandstöðuflokkar studdu við ríkisstjórnina og þá flokka innan hennar raða sem vildu taka á málunum. Flokkur fólksins hefur hins vegar aldrei farið í grafgötur með það að það verður að vera skýr stefnumörkun og nú erum við að einfalda kerfið og við munum hafa það skilvirkara. Það voru ýmsir plástrar sem kostuðu allt of mikið vegna þess að við áttum ekki heildstæða sýn, við höfðum ekki heildstæða stefnu til að byggja á. (Forseti hringir.) En nú erum við að byggja hana og ég bið bara einfaldlega um að við gerum það saman og að við gerum það vel.
Herra forseti. Ég verð að þakka þessum yndislegu hv. þingmönnum fyrir að gefa mér allt þetta vatn.