kostnaður vegna einstaklinga sem hafa sótt um eða fengið alþjóðlega vernd.
Virðulegi forseti. Ég þakka bæði fyrirspyrjanda og hæstv. ráðherra fyrir. Hæstv. ráðherra sagði að vísu að hún ætlaði ekki að vera ósanngjörn, sem er svo sem sérstök yfirlýsing frá hæstv. ráðherra, að taka það fram að hann ætli ekki að vera ósanngjarn, og skammaði síðan fyrri ríkisstjórn. En við erum alveg saman í liði í þessu. Það er ekkert leyndarmál að menn voru ekki samstiga í síðustu ríkisstjórn þegar að þessu kom, það liggur fyrir. Ég hvet hæstv. ráðherra til að útlista það nákvæmar heldur hún vísaði til, hún vísaði til þess að það þyrfti að vera með heildstæða sýn og heildstæða nálgun og það er allt satt og rétt. En við erum bara til að styðja hæstv. ráðherra í þessu þannig að ég hvet hæstv. ráðherra til að útlista hvað hún ætlar sér í þessum málum því að afstaða okkar Sjálfstæðismanna hefur alltaf legið fyrir og það var þá verst geymda leyndarmál í heimi að það voru deilur í síðustu ríkisstjórn um þennan málaflokk, ef það fór fram hjá einhverjum.