kostnaður vegna einstaklinga sem hafa sótt um eða fengið alþjóðlega vernd.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir að koma með þessa fyrirspurn í þingið og hæstv. ráðherra fyrir hennar svör. Fyrir ári síðan var sá sem hér stendur með fyrirspurnir til þeirra þriggja ráðuneyta sem þessi kostnaður dreifist niður á, kostnaður vegna alþjóðlegrar verndar, frá 2015 þannig að það komu töluleg gögn og unnið saman í þremur skjölum í fyrra. Í síðustu viku kom ég með sams konar fyrirspurn til hæstv. ráðherra um árið 2024. Það er gríðarlega mikilvægt að við höfum öll gögn, nákvæm gögn, um það sem við er að fást í þessum málaflokki og þess vegna bíð ég nokkuð spenntur eftir að sjá hvernig þetta þróaðist árið 2024 vegna þess að það var sprenging í þessu eins og sjá má af svörunum við fyrirspurnunum í fyrra. Það gefst ekki tími til að fara yfir þau gögn en ég vona svo sannarlega að hæstv. ráðherra komi með svar sem allra fyrst. Nú þarf bara að vinna eitt ár en ekki frá 2015, sjö, átta ár eða hvernig þetta var í fyrra.