156. löggjafarþing — 45. fundur,  19. maí 2025.

kostnaður vegna einstaklinga sem hafa sótt um eða fengið alþjóðlega vernd.

25. mál
[16:31]
Horfa

Karólína Helga Símonardóttir (V):

Herra forseti. Ég þakka fyrir þessa fyrirspurn og þessa umræðu hérna í þingsal. Þetta er mikilvægt umræðuefni. Mig langaði einmitt að minna á, af því að við erum að tala um hvernig getum við sparað í ákveðnum málaflokkum, að þegar kemur að fólki þá eigum við ekki að velja fyrst að spara en við getum breytt og við getum fært og við getum gert betur. Hæstv. dómsmálaráðherra ræddi einmitt hér á fyrri þingfundi í dag alls konar verkfæri sem þau sjá fyrir sér að nota til að vinna í þessum málaflokki og styrkja landamæri Íslands. En við þurfum líka að ræða hvernig við ætlum að taka á móti fólki af erlendum uppruna og styrkja það á landinu okkar.