kostnaður vegna einstaklinga sem hafa sótt um eða fengið alþjóðlega vernd.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir að vekja máls á þessari umræðu. Mig langaði samt að koma hérna upp af því að ég er í flokki sem hvorki er hvorki er í ríkisstjórn núna eða áður og hér áður, eins og Inga minntist á, var margt sem mátti gera betur. En samflokkar hæstv. ráðherra voru eiginlega á móti öllu góðu sem kom þó alla vega frá Sjálfstæðisflokknum á síðasta kjörtímabili. Þess vegna velti ég fyrir mér hvort hún gæti aðeins komið inn á það í svari sínu hérna í lokin, ef hún kemur aftur upp, hvað er breytt, hvort hún hafi trú á því að þessir flokkar séu búnir að breyta um skoðun og hvað sé helst að frétta í velferðarmálum þegar kemur að hælisleitendamálum.
(Forseti (IngÞ): Forseti minnir á að ávarpa skal hæstv. ráðherra sem hæstv. ráðherra og með fullu nafni og einnig að beina skal máli sínu til forseta.)