kostnaður vegna einstaklinga sem hafa sótt um eða fengið alþjóðlega vernd.
Herra forseti. Ég fagna auðvitað þessari umræðu. Þetta er löngu tímabært. Það sem vekur auðvitað furðu í þessum málum er að við höfum verið bláeygð gagnvart því að þessi kostnaður hefur aukist ár frá ári síðustu 10–15 árin án þess að nokkur hafi spyrnt við fótum. Milljarðatugir hafa runnið úr ríkissjóði til þessa málaflokks án þess að nokkur vilji hafi verið til þess meðan stjórnvalda hingað til til að taka á þessu og verja skattfé borgaranna í þarfari hluti heldur en að halda uppi fólki sem vitað er jafnvel fyrir fram að á engan rétt á því að fá hér alþjóðlega vernd, eins og það er kallað, svokallaða hælisleitendur.