kostnaður vegna einstaklinga sem hafa sótt um eða fengið alþjóðlega vernd.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra og þeim sem hafa tekið þátt. Það er nýbreytni að fulltrúi hæstv. ríkisstjórnar kenni ekki fráfarandi ríkisstjórn um allt og allt það, en ef til vill er það svo af því að hæstv. ráðherra þekkir svo vel og tengdi einmitt við málflutning okkar í Sjálfstæðisflokknum þegar við framkvæmdum breytingar á reglum um örugg upprunalönd, náðum hælisumsóknum niður um meira en 60% undir lok síðasta kjörtímabils, jukum brottflutning og frávísanir á landamærunum. Hæstv. ráðherra nefndi sérstaklega færri en stærri búsetuúrræði. Ég hefði viljað heyra meira um beinar aðgerðir varðandi kostnað sem heyrir beint undir hæstv. ráðherra. Ég bendi m.a. á fyrirspurn sem ég er þegar með inniliggjandi hér í þinginu um endurgreiðslu á kostnaði sveitarfélaganna. Satt að segja hef ég saknað þess örlítið að heyra ekki meira frá fulltrúum Flokks fólksins um þessi mál að undanförnu og mig langar til að hvetja hæstv. ráðherra til dáða. Það er ekki eftir neinu að bíða. Hæstv. ráðherra getur velt við öllum steinum og kannað þann beina kostnað sem fellur undir hana. Ekki nema það sé kannski, eins og hv. þm. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir kom inn á áðan, erfiðara að vera í ríkisstjórn með vel klæddu Pírötunum í Viðreisn heldur en við erum látin halda. Við þekkjum það vel frá síðasta kjörtímabili hvernig fulltrúar þess flokks héldu hér uppi viðvarandi málþófi, m.a. gagnvart öllum góðum breytingum á útlendingalöggjöfinni.