156. löggjafarþing — 45. fundur,  19. maí 2025.

kostnaður vegna einstaklinga sem hafa sótt um eða fengið alþjóðlega vernd.

25. mál
[16:36]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Herra forseti. Ég vil þakka öllum hv. þingmönnum sem hér hafa tjáð sig og sérstaklega fyrirspyrjanda fyrir þessa góðu umræðu. Í fyrsta lagi verð ég að viðurkenna að mér hljóp kapp í kinn hérna áðan og hafði ekki nema fimm mínútur til að ræða við hv. þingmann um fyrirspurnina þannig að ég sleppti því að lesa tvo þriðju af ræðunni sem voru aðallega um það hvað ég ætlaði nú að gera til að spara peninga. Ég hvet hv. þingmann til að fá það bara skriflega frá mér því að það er alveg rosa mikið um það, þar á meðal, eins og hv. þingmaður réttilega bendir á, að gera hagkvæmari samninga við sveitarfélögin og koma á betra skipulagi hvað varðar t.d. 15. gr., sem lýtur að því að við höfum verið að greiða jafnvel stuðning við einstaklinga í fleiri en einu og tveimur sveitarfélögum á sama tíma. Eins og ég segi, það var ákveðið kaos sem ríkti hérna hjá okkur og þess vegna náttúrlega er það eins og það er, en við ætlum að laga það og við ætlum að gera það saman vonandi.

Um það sem lýtur að ríkisstjórninni og hvort það hafi orðið einhver stakkaskipti þá er svarið nei, ekki nema að því leyti til að við gerum okkur grein fyrir því að við getum ekki áfram verið með einhverjar sérreglur á Íslandi hvað lýtur að einstaklingum sem sækja hér um alþjóðlega vernd. Við getum ekki verið með þröskuldinn lægri þannig að hingað streymi flóðið. Við verðum að vera til jafns á við önnur Norðurlönd. Hvað ætlum við að gera til þess? Við stöndum algjörlega saman. Við göngum í takt þannig að þið getið alveg trúað því sem þið heyrið og sjáið og lýtur að því að við erum samstiga. Það gengur mjög vel hjá okkur og ég trúi því að við eigum öll eftir að gleðjast saman fyrr en seinna þegar við sjáum það að við eigum eftir að ná þeim árangri sem við stefnum að; að ná utan um það risavaxna verkefni sem við höfum verið með í fanginu sem lýtur að ofurfjölda einstaklinga sem hafa óskað eftir alþjóðlegri vernd. En eins og ég benti á í upphafi þá er að draga mjög hratt úr þeirri umsóknaröldu. Það má bæði þakka aðgerðum fráfarandi ríkisstjórnar og þeirri stefnubreytingu sem er í rauninni að verða (Forseti hringir.) með því að við erum að taka ákveðna hópa út fyrir sviga sem geta ekki gengið hér inn í alþjóðlega vernd án þess að ganga í gegnum umsóknarferli.