lyftur fyrir hreyfihamlaða á heimilum fólks.
Virðulegi forseti. Ég kem hér upp til að eiga orðastað við hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra og þakka hæstv. ráðherra fyrir að ætla að svara þessari fyrirspurn. Ég veit að hæstv. ráðherra deilir þeirri sýn sem ég hef varðandi það að vilja standa vörð um kjör og réttindi aldraðra og öryrkja í samfélaginu okkar og að lyfta þeim og koma í veg fyrir að þeir verði fyrir einhvers konar ranglæti. Hæstv. ráðherra hefur staðið sig einkar vel í þeirri vinnu. Ég átti á dögunum samtal við fólk í mínu kjördæmi, Hafnfirðinga, þar sem ég lærði að til væri reglugerð um lyftur á heimilum fólks, sem ég hreinlega vissi ekki. Þannig er mál með vexti að þessi fjölskylda á son sem notast við hjólastól og þá kom í ljós í þessu samtali að í reglum á Íslandi er það þannig að sama eftirlitsskylda hvílir á lyftum í heimahúsi eins og lyftum í verslunarmiðstöð eða í fyrirtækjum með tugþúsundum innstiga á hverjum degi. Þessu fylgir ærinn kostnaður fyrir fjölskyldur og einstaklinga sem þurfa að hafa slíkar lyftur í heimahúsum. Þetta vakti athygli mína og því fór ég að velta fyrir mér hvernig þetta væri á Norðurlöndunum eða í nágrannalöndum og hvort þetta væri bara öryggissjónarmið. En þá virtist koma í ljós að við værum með talsvert meira íþyngjandi kvaðir varðandi eftirlit í heimahúsum heldur en nágrannalöndin.
Því vildi ég spyrja hæstv. ráðherra:
1. Hvernig er eftirliti háttað með lyftum fyrir hreyfihamlaða á heimilum fólks, sbr. reglugerð nr. 54/1995, um skráningu, eftirlit og umsjón með lyftum og lyftubúnaði til fólks- og vöruflutninga?
2. Telur ráðherra núverandi fyrirkomulag um eftirlitsheimsóknir vera íþyngjandi fyrir hreyfihamlaða sem þurfa að vera með lyftu á heimili sínu?
3. Telur ráðherra, í ljósi þess að samkvæmt fyrrnefndri reglugerð eru gerðar sömu kröfur um eftirlit með vörulyftum og lyftum í heimahúsi, að þörf sé á að breyta reglugerðinni til að koma til móts við þá sem þurfa á lyftu að halda á heimili sínu vegna fötlunar?