lyftur fyrir hreyfihamlaða á heimilum fólks.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Ara Sigurjónssyni fyrir þessa góðu fyrirspurn. Hv. þingmaður spyr hvernig eftirliti sé háttað með lyftum fyrir hreyfihamlaða á heimilum fólks, sbr. reglugerð nr. 54/1995, um skráningu, eftirlit og umsjón með lyftum og lyftubúnaði til fólks og vöruflutninga. Í reglugerðinni er kveðið á um umrætt eftirlit en samkvæmt reglugerðinni sér Vinnueftirlit ríkisins um að árlega sé framkvæmd skoðun á öllum lyftum sem ætlaðar eru til fólksflutninga, þar með talið lyftum fyrir hreyfihamlaða á heimilum fólks, og skulu skoðanir og prófanir vera í samræmi við gildandi staðla og reglur hverju sinni. Fram kemur í reglugerðinni að reynist öryggisbúnaður og annað það sem skoðað er í fullkomnu lagi gefi eftirlitsmaður m.a. út skoðunarvottorð sem heimilar áframhaldandi notkun á lyftu sem um ræðir. Auk þess gefur skoðunarmaður út vottorð um skoðun og prófun lyftunnar sem hengja skal upp á lyftustólnum eða við lyftuna eftir því sem við á. Í reglugerðinni kemur fram að gera þurfi samning við viðkomandi umsjónarmann um reglulega þjónustu á lyftu. Jafnframt kemur fram að þjónusta þurfi lyftur minnst fjórum sinnum á ári.
Hv. þingmaður spyr hvort ráðherra telji núverandi fyrirkomulag um eftirlitsheimsóknir vera íþyngjandi fyrir hreyfihamlaða sem þurfi að vera með lyftu á heimili sínu. Já, hv. þingmaður, ég tel að það sé mjög svo íþyngjandi að hreyfihamlað fólk skuli þurfa að standa straum af háum gjöldum vegna þjónustuskoðana fjórum sinnum á hverju einasta ári. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir að koma með þessa fyrirspurn. Ja, einu sinni mér áður brá. Ég á bara ekki eitt einasta aukatekið orð yfir þessu. Ég tel ekki að fólk ætti að bera aukinn kostnað vegna fötlunar sinnar og því tel ég það algjörlega nauðsynlegt að endurskoða núverandi fyrirkomulag með tilliti til þess að færa það þangað sem það er á Norðurlöndunum. Hins vegar verður að ætla að hreyfihamlaðir líkt og aðrir sem nýta sér lyftur af einhverjum ástæðum vilji vera vissir um að þær lyftur sem þeir eru að nota uppfylli ávallt þær kröfur sem gerðar eru í því skyni að tryggja öryggi, en reglulegar öryggisskoðanir á lyftum af þar til bærum aðilum gegna að mínu mati stóru hlutverki í því sambandi.
Varðandi lyftur sem eru fyrir hreyfihamlaða þá voru samtals 768 slíkar lyftur á skrá hjá Vinnueftirlitinu og áætlað er að ríflega helmingur þeirra sé í eigu sveitarfélaga og ríkis. Flestir aðrir skráðir eigendur eru fasteignafélög, húsfélög og fyrirtæki sem þurfa að tryggja aðgengi. Þær lyftur sem eru í eigu sveitarfélaga kunna að stórum hluta til að vera staðsettar í heimahúsum fólks. Við skulum átta okkur á því að innan við 30 slíkar lyftur eru í eigu einstaklinga.
Nú þegar þessi mál eru á mína ábyrgð vil ég skoða vel og rækilega hvort ekki sé unnt að minnka kostnað þessara einstaklinga í tengslum við þessar skoðanir eða jafnvel fella hann alfarið niður þegar lyfta er í eigu einstaklinganna sjálfra. Ég trúi ekki öðru en að það eigi að vera okkur hægðarleikur.
Að lokum er spurt hvort ráðherra telji, í ljósi þess að samkvæmt fyrrnefndri reglugerð eru gerðar sömu kröfur um eftirlit með vörulyftum og lyftum í heimahúsi, að þörf sé á að breyta reglugerðinni til að koma til móts við þá sem þurfa á lyftu að halda á heimili sínu vegna fötlunar. Það er mitt mat að alls ekki megi slá af neinum faglegum kröfum sem almennt eru gerðar til eftirlits með lyftum í heimahúsum fyrir hreyfihamlaða, enda er mikilvægt að þær lyftur sem hreyfihamlaðir þurfa að reiða sig á innan veggja heimilisins séu ávallt öruggar. Hvað það varðar má að mínu mati engan afslátt veita en ég vil skoða betur hvort færri skoðanir á ári geti hugsanlega tryggt sama öryggi. Í því sambandi bendi ég á að reglugerðin þar sem kveðið er á um umrætt eftirlit er komin til ára sinna og því er nú kannski eðlilegt að önnur sjónarmið séu uppi í dag en voru þegar reglugerðin var sett fyrir um 30 árum síðan. Í samtali við Vinnueftirlitið hefur komið fram að það telur að fækka megi þjónustuskoðunum þannig að aðeins þurfi eina þjónustuskoðun á ári og jafnframt að það dugi að hafa eftirlitsskoðun annað hvert ár.
Að lokum vil ég þakka fyrir þessa góðu fyrirspurn. Ég mun í kjölfar hennar skoða þessi mál ofan í kjölinn með sérfræðingum á þessu sviði og ekki síður með notendunum sjálfum þannig að breytingar verði til batnaðar fyrir notendurna frá því sem nú er. Sem sagt, ég mun beita mér fyrir því, hv. þingmaður, að þjónustuþeginn, fatlaði einstaklingurinn, þurfi ekki að borga eina einustu krónu fyrir það að láta skoða lyftu sem hann nauðsynlega þarf fötlunar sinnar vegna, fyrir utan það að ég skil í rauninni alls ekki þá hugmyndafræði sem liggur að baki því að þurfa að koma fjórum sinnum á ári til að skoða sömu lyftuna.