lyftur fyrir hreyfihamlaða á heimilum fólks.
Herra forseti. Mín örstutta athugasemd snýr bara að því að mig langaði að fagna þessari fyrirspurn hv. þm. Guðmundar Ara Sigurjónssonar. Það er gleðilegt þegar þeir flokkar sem standa að stjórnarmeirihlutanum beina sjónum sínum að því að hvernig er hægt að einfalda líf fólks. Það þarf ekki alltaf að stíga skrefinu lengra í þágu kannski meints öryggis og þá vil ég að sjálfsögðu taka fram að auðvitað skiptir öryggi máli. En ef það er alltaf eina sjónarhornið þá sér maður að þá erum við fljótt komin kannski óþarflega langt í þá veru í staðinn fyrir að horfa til einhvers konar meðalhófs og skynsemi í því. Það hefur í gegnum árin kannski verið djúpt á þessu sjónarhorni af hálfu þeirra stjórnarliða sem hafa staðið að þessum flokkum hingað til þannig að ég vildi bara fagna þessari nálgun á málið. Svo heyrði ég á svari ráðherra að hún ætlar að skoða þetta þannig að ég fagna þessu.