156. löggjafarþing — 45. fundur,  19. maí 2025.

lyftur fyrir hreyfihamlaða á heimilum fólks.

339. mál
[16:50]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Herra forseti. Ég þakka aftur fyrir þessa góðu fyrirspurn hv. þm. Guðmundi Ara Sigurjónssyni og þeim hv. þingmönnum sem hafa komið hér og tekið til máls. Það er alltaf jafn ljúft að standa hér í æðsta ræðupúltinu og finna hlýhug og velvilja allra sem koma að máli, það er í rauninni það sem gerir þingstörfin þess virði að standa í þeim, þegar við finnum að hjörtu okkar slá í takt. Í þessu tilviki er okkur í lófa lagið að gera þetta, þetta eru um 30.000 kr. fyrir hverja eftirlitsskoðun eða ástandsskoðun sem er gerð fjórum sinnum á ári. Það eru um 120.000 kr. a.m.k. sem einstaklingur þarf að leggja út. Við erum ekki að tala um marga einstaklinga vegna þess að sveitarfélögin og aðrir sjá um það sjálfir, þetta lendir aðallega á þeim einstaklingum sem eiga sína lyftu sjálfir ef ég er að skilja hlutina rétt. Okkur er í lófa lagið að laga þetta og við munum gera það með glöðu geði.