156. löggjafarþing — 45. fundur,  19. maí 2025.

útlendingamál.

379. mál
[16:55]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur hjartanlega fyrir þessa fyrirspurn sem í raun er einstaklega viðamikil, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Hv. þingmaður spyr hversu mikil áhrif útlendingamál hafa, þ.e. málefni umsækjenda um alþjóðlega vernd flóttafólks og innflytjenda á innviði hér á landi, og hversu mikil áhrifin eru til skemmri og lengri tíma.

Ég vil byrja á því að þakka fyrirspyrjanda fyrir áhugaverða fyrirspurn en spurt er um áhrif tiltekinna hópa fólks í okkar samfélagi á innviði hér á landi til skemmri og lengri tíma. Gera verður ráð fyrir að áhrif þessara þriggja hópa, ef svo má að orði komast, á innviði landsins, séu mismunandi, sérstaklega þegar horft er til skemmri tíma annars vegar og lengri tíma hins vegar. Lagaumgjörðin og stuðningur hins opinbera er öðruvísi eftir því hvort um er að ræða umsækjendur um alþjóðlega vernd, kvótaflóttafólk eða innflytjendur sem flytja hingað, svo sem á grundvelli EES-samningsins eða til náms eða vegna þess að þeir hafa fengið atvinnuleyfi og tilboð um vinnu o.s.frv. Þetta er nú dálítið umfangsmikið en ætla má að áhrifin til skemmri tíma séu mjög mikil þegar fjöldi umsókna um alþjóðlega vernd er eins mikill hér á landi eins og raun ber vitni. Hér varð eftirspurnin alveg gífurleg, eftirspurn eftir húsnæði og áskoranir miklar innan skólakerfis, heilbrigðiskerfis og allra innviða okkar. Það liggur alveg fyrir enda þurfa t.d. börn sem ekki tala íslensku öðruvísi þjónustu innan skólakerfisins en börn sem tala tungumálið. Þarna mættum við gríðarlega miklum áskorunum og gerum enn. Við erum að jaðarsetja lítil börn sem eru að koma hér frá öðrum löndum sem tala aðra tungu vegna þess að við erum ekki nógu dugleg að aðstoða þau við að læra tungumálið okkar. Í þessu sambandi skiptir miklu máli hvað gert er í upphafi þegar fólk kemur til landsins. En þá strax tel ég mjög mikilvægt að við styðjum vel við þessa einstaklinga með því að horfa til styrkleika þeirra og með því að virkja þá til athafna þannig að þeir geti sem fyrst staðið jafnfætis okkur hinum sem búum hér. Þar tel ég íslenskukennsluna vera algjört grundvallaratriði.

Ég vil nefna í samhengi fyrirspurnanna þá staðreynd sem kom fram á ársfundi Landspítalans nú í lok síðustu viku að sjúklingum með erlent ríkisfang hefur fjölgað hvorki meira né minna en um 47% frá árinu 2019. Bara sú tölulega staðreynd segir margt um stöðuna.

Hv. þingmaður ber spyr hver áhrifin séu til skemmri og lengri tíma. Skammtímaáhrifin eru mikil í tilviki þeirra sem sækja um alþjóðlega vernd hér á landi, enda eru þeir á framfærslu hins opinbera þar til ákvörðun er tekin um hvort veita skuli vernd eða ekki. Þeir sem ekki hljóta vernd þeirra eru líka áfram á framfærslu hins opinbera þar til kemur að brottvísun nema þeir sýni ekki samstarfsvilja og vilji bara alls ekki fara. Sá mikli kúfur umsókna um alþjóðlega vernd sem bárust á árunum 2022–2024 hafði mikil áhrif, bæði á fjárhag ríkissjóðs sem og innviði, skóla, félagslegt húsnæði, opinbera stjórnsýslu, á útlendingamálin, heilbrigðismálin og bara í rauninni allt kerfið okkar. Það hefur ekki verið farið fram ítarleg greining á umfanginu sem slíku, á skammtímaáhrifum eða hugsanlegum langtímaáhrifum útlendingamála á innviðina, svo sem áhrifa þess að umsóknum um alþjóðlega vernd fjölgar svo verulega, en ekki gáfust tök á því að ráðast í svo umfangsmikla vinnu til að svara þeirri frábæru fyrirspurn hv. þingmanns á svo skömmum tíma. En það breytir ekki þessari staðreynd.

Spurningin og uppleggið sem hv. þingmaður leggur hér fram er mjög yfirgripsmikið og mjög nauðsynlegt að ná utan um. Þess vegna vil ég hvetja hv. þingmann til að leggja fram beiðni hér, skýrslubeiðni á Alþingi, þess efnis og þingheimur taki slíka beiðni til afgreiðslu. Ég efast ekkert um það að hún verði heimiluð, sem þýðir það einfaldlega að það verði farið í ítarlega skoðun á öllum þáttum þessa máls. En ég bendi á það að við erum í raun og veru komin fyrir vind og við erum raunverulega að taka á málinu. En staðreyndin er sú að þessi málaflokkur hefur haft gífurleg áhrif á samfélagið allt, innviði okkar og í rauninni fjárhagsstöðu. Ríkissjóður hefur þurft að greiða tugi milljarða á tugi milljarða ofan og það vitum við vel. En við skulum samt ekki gleyma því að mjög mikið af því fólki, hér eru tæplega 70.000 einstaklingar af erlendu bergi brotnir (Forseti hringir.) — þetta er í rauninni fjársjóður sem okkur ber skylda til að taka fagnandi og virkja til dáða ef þau fá hér alþjóðlega vernd.