156. löggjafarþing — 45. fundur,  19. maí 2025.

útlendingamál.

379. mál
[17:01]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér mikilvægt mál, hvernig við tökum á móti fólki og áhrifin á samfélagið okkar og börn skipta þar kannski hvað mestu máli, hvernig er búið um þeirra hag í þessu öllu saman. Einnig er gjarnan talað um hvernig það fólk sem hér kemur og dvelur í samfélaginu aðlagast. Það skiptir gríðarlega miklu máli. Því langaði mig að koma hér og spyrja og vísa því kannski til hæstv. ráðherra: Hvernig er hugað að ástundun þessara barna í íþróttastarfi? Ég held að það sé ekkert betra en íþróttir og tómstundir til að hjálpa fólki að aðlagast samfélaginu og þurfum við að hafa það í huga í þessum málum, svo maður noti þessa mínútu í eitthvað eitt í þessum stóra málaflokki.