156. löggjafarþing — 45. fundur,  19. maí 2025.

útlendingamál.

379. mál
[17:02]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég, tek undir það með hæstv. ráðherra að þetta er gríðarlega yfirgripsmikil fyrirspurn frá hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur en líka gríðarlega mikilvæg. Ég ætlaði nú að leggja til að við myndum bara efna til sérstakrar umræðu undir sérstökum dagskrárlið en ráðherra kom með enn betri hugmynd, að óskað yrði eftir skýrslu um málaflokkinn. Ég tel mikla þörf á því. Þótt að aldeilis hafi verið gerðar góðar breytingar á útlendingalögunum á síðasta kjörtímabili og hælisleitendum snarfækkað þá er engu að síður mjög stór hópur hælisleitenda og flóttafólks enn í landinu sem er að valda gríðarlega miklu álagi á innviði, ekki síst innan skólanna og heilbrigðisþjónustunnar. Það er gríðarlega mikilvægt að ná vel utan um það, sérstaklega vil ég hafa í huga þau börn sem koma til með að vera hérna, til þess að þau aðlagist okkur, aðlagist íslensku þjóðfélagi (Forseti hringir.) og komi til með að ganga vel. Og varðandi það sem var verið að nefna um íþróttafélögin þá vil ég benda á það að innan sveitarfélaganna (Forseti hringir.) hefur byggst upp gríðarlega mikil fagþekking á því hvernig eigi að aðlaga börnin, m.a. að tengja þau við íþróttir og annað slíkt.