156. löggjafarþing — 45. fundur,  19. maí 2025.

útlendingamál.

379. mál
[17:04]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Herra forseti. Komin fyrir vind. Þetta sagði hæstv. ráðherra í svari sínu hérna áðan. Ég er ekki viss um að það taki allir undir þá túlkun með hæstv. ráðherra, því að eins og kom fram í fyrirspurn hv. þm. Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur áðan, og í raun og veru má segja að hæstv. ráðherra hafi staðfest með svari sínu, þá vitum við bara ósköp einfaldlega ekki hvað þetta kostar. Gögnin eru ekki til og þetta er nú ekki fyrsta málið í vetur í þessum sal þar sem það er einmitt stóri vandinn, okkur skortir gögn, okkur skortir einhverja heildaryfirsýn. Meðan við vitum ekki hvað eru margir í landinu, hvaða þjónustu þeir nota, hversu ört þeir nota hana, hvort það er jafnvel í einhverjum tilfellum um misnotkun að ræða á þessum innviðum okkar, þá er mér algjörlega fyrirmunað að átta mig á því hvernig er hægt að túlka það þannig að við séum komin fyrir vind.