156. löggjafarþing — 45. fundur,  19. maí 2025.

útlendingamál.

379. mál
[17:06]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég vil nota tækifærið og þakka bæði hv. fyrirspyrjanda og hæstv. ráðherra. Það er alveg rétt hjá hæstv. ráðherra, þetta er auðvitað gríðarlega yfirgripsmikið og ég held að það sé góð hugmynd að hv. þingmaður, og ég mun styðja hv. þingmann í því, biðji um betri upplýsingar. En ég hef samt velt fyrir mér, af því að ég hef nú oft hlustað á hæstv. ráðherra hér áður, að mér finnst svolítið annar tónn í hæstv. ráðherra en var hér á síðasta kjörtímabili. Er það þannig að það sé eitthvað verið að halda aftur af sér út af ríkisstjórnarsamstarfinu? Það er mín spurning til ráðherra. Ég efast ekkert um að það hafi verið djúpt á þessum upplýsingum, ég þekki það vel, en ráðuneytið býr yfir mjög mikið af upplýsingum. Ég átti nú frekar von á því að hæstv. ráðherra myndi upplýsa okkur um eitthvað sem hæstv. ráðherra hefði orðið áskynja eftir að vera búin að vera þennan tíma í ráðuneytinu, þó svo að ég sé mjög ánægður með að við séum að sjá hér skýrslubeiðni sem mun taka þetta heildstætt, sem ég held að sé mjög skynsamlegt. En er hæstv. ráðherra ekki með neitt fyrir þing og þjóð í tengslum við þennan kostnað?