156. löggjafarþing — 45. fundur,  19. maí 2025.

útlendingamál.

379. mál
[17:07]
Horfa

Grímur Grímsson (V):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir þessa umræðu, bæði fyrirspyrjanda og hæstv. ráðherra og þeim sem tekið hafa þátt hér. Mér finnst þetta mjög mikilvæg umræða. Það er álag á kerfið okkar mjög víða, heilbrigðiskerfið, félagslega kerfið, að einhverju leyti löggæsluna og ýmislegt fleira. Það sem mér finnst vera mikilvægt í þessari umræðu er að við gerum okkur grein fyrir því að ef við getum einhvern veginn náð utan um þennan kostnað, vitað hver þessi kostnaður er, þá getum við betur búið okkur undir það að taka á móti fólki, vegna þess að í grunninn skiptir náttúrlega öllu máli að við getum tekið vel á móti því.

Mig langar að nefna aðeins varðandi íslenskuna að fólk sem hér óskar eftir alþjóðlegri vernd getur kannski ekki farið að einbeita sér að læra íslensku fyrr en það fær hina alþjóðlega vernd, ég held að það sé alveg borin von að það taki tíma í það ef það er ekki þegar búið að fá verndina.