útlendingamál.
Herra forseti. Ég fagna þessari umræðu. Þetta er náttúrlega af sama meiði og nokkrar fyrri umræður hér í dag og kannski áfram. En staðreyndin er sú að allt kemur þetta til vegna galopinna landamæra mörg undanfarin ár. Menn hreykja sér af því að hafa lagað þetta eitthvað en það er algjör bútasaumur. Það er alger bútasaumur, fullyrði ég. Menn þurfa auðvitað að fara að taka á þessu af einhverjum þrótti, hæstv. ráðherra. Við getum ekki haft þennan opna krana á útgjöldum ríkissjóðs til þeirra sem koma hér og er hafnað um alþjóðlega vernd og fyrir fram vitað að þeim mun verða hafnað. Þetta skapar mjög mikið álag á alla innviði, eins og komið hefur fram í þessari umræðu. Ég vil bara hvetja hæstv. ráðherra að taka til hendinni og stemma stigu við þessu.