útlendingamál.
Herra forseti. Ég vil þakka fyrirspyrjanda hjartanlega fyrir og öllum þeim sem hafa tekið til máls. Varðandi þessar tölulegu upplýsingar sem ég gaf þá komu þær fram í lok síðustu viku á ársfundi Landspítalans. Það er sennilega þess vegna sem hæstv. heilbrigðisráðherra hefur ekki getað komið með þær vegna þess að þær hafa ekki legið fyrir. Við höfum lítið vera að tala um kostnaðinn beint vegna þess að kostnaðurinn í mínu ráðuneyti er kannski ekki svo hlutfallslega stór miðað við hvað hefur verið t.d. í kringum landamærin, löggæsluna og í dómsmálaráðuneytinu, hvað lýtur að Útlendingastofnun og annað slíkt. En auðvitað er mjög mikill kostnaður sem hefur fallið til hjá Vinnumálastofnun. Við vitum að þegar verst lét þá vorum við að tala um tugi milljarða og við fengum aldrei, hvorki í fjárlaganefnd eða nokkurs staðar annars staðar á síðasta kjörtímabili, raunverulegar upplýsingar um raunverulegan kostnað vegna þess að það var alltaf að falla eitthvað til sem ekki hafði verið gert ráð fyrir og kannski var hægt að fá upplýsingar um það ári síðar eða jafnvel ekki fyrr en tveimur árum seinna.
Þegar ég segi að við séum komin fyrir vind þá er staðreyndin sú að það hefur snarlega fækkað einstaklingum um alþjóðlega vernd þannig að okkur finnst við vera að ná jafnvægi á málaflokknum. Við teljum að með þessum aðgerðum sem á að fara að ráðast í á landamærunum munum við einnig ná enn betur utan um málaflokkinn þannig að við munum strax sjá mikinn árangur af því að vera með skilvirka afgreiðslu á umsóknum er varða alþjóðlega vernd hér á landi. Þannig að mér finnst við vera að ná utan um málið. Þetta er búið að vera þrautaganga fyrir okkur og við vitum það öll að þrátt fyrir að vilja taka vel á móti fólki þá getum við ekki bjargað öllum heiminum og ég hef alveg verið skýr með það. Og hvað sem hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson nefnir, að ég sé eitthvað búin að skipta um skoðun, það er ég bara alls ekki. Ég er ekkert mjúkmálli. En ég er í ríkisstjórn í dag en ekki hrópandinn í eyðimörkinni í stjórnarandstöðu og hrópandi á hv. þm. Guðlaug Þór Þórðarson, þáverandi hæstv. ráðherra, þannig að verkaskiptingin er orðin pínulítið önnur og þar af leiðandi er nándin og nálgunin líka svolítið mikið önnur. En við erum samstiga og við erum að gera góða hluti og ég krefst þess enn þá af öllu hjarta að við gerum þá saman.