156. löggjafarþing — 45. fundur,  19. maí 2025.

sameiningar háskóla.

11. mál
[17:18]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að vekja athygli á þessu mikilvæga máli sem efling háskólastarfsemi um allt land er. Þá á ég einkum við eflingu í þeim skilningi að auka gæði háskólamenntunar í þágu alls samfélagsins. Háskólarnir í dag eru sjö, þar af fimm opinberir. Þeir eiga kannski ekki endilega fyrst og fremst í samkeppni sín á milli. Þeir eiga í mikilli samkeppni við alþjóðlega háskóla og við þurfum auðvitað í okkar litla landi að móta umhverfið til að vera í stakk búin til að mæta þeirri samkeppni. Það er mikill munur á stærð íslenskra háskóla. Háskóla Íslands er auðvitað þeirra stærstur með 1.614 starfsmenn, Hólaskóli minnstur með 51 starfsmann. Í tillögum Ríkisendurskoðunar er t.d. lagt til að ákveðnir þættir hjá Árnastofnun verði færðir undir Háskóla Íslands og að kannað verði af fullri alvöru með tilliti til smæðar þriggja af fjórum opinberu háskólunum hvort auka megi stærðarhagkvæmni þeirra með sameiningu eða auknu samstarfi.

Við skrifuðum, eins og hv. þingmaður kom inn á, undir samkomulag á dögunum um stofnun háskólasamstæðu Háskóla Íslands og Háskólans á Hólum og sú vinna er vel á veg komin. Samstæðan mun taka til starfa 1. janúar á næsta ári og nýtast báðum skólunum vel. Ég sé fyrir mér að fleiri einingar innan okkar kerfis geti runnið inn í þessa háskólasamstæðu og gert hana enn sterkari.

Varðandi sameiningarviðræður milli Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst þá eru þær skemmra á veg komnar en hins vegar hefur verið tekin ákvörðun um að taka meiri tíma í þær viðræður heldur en voru fyrirhugaðar á síðasta kjörtímabili og ég tel að það sé afar skynsamlegt. En það var í tíð fyrri ríkisstjórnar sem vinna hófst við sameiningu þessara tveggja skóla og í nóvember síðastliðnum var skrifað undir samkomulag um nýtingu 200 millj. kr. úr samstarfssjóði háskólanna sem ætlaðar voru til undirbúnings og framkvæmdar sameiningarinnar. Þessi vinna heldur áfram og hún þróast ágætlega áfram með skýra verkáætlun þar sem er lögð áhersla á samræmingu lykilkerfa á borð við kennslu, upplýsingatækni og mannauðskerfi og svo auðvitað aðlögun námsframboðs og rannsókna. Á þessu ári var, eins og hv. þingmaður kom inn á, ráðinn verkefnisstjóri þannig að þetta er allt í ágætisfarvegi.

Þetta eru hins vegar flóknir hlutir. Annars vegar er um að ræða opinberan háskóla og hins vegar sameignarstofnun þannig að þetta er ekki allt alveg auðvelt en við munum auðvitað bara styðja við þessi áform að því leyti sem stofnanirnar ná markmiðum sínum. Sameiningin má ekki snúast um að sameina bara til að sameinast. Hún verður að skapa ný tækifæri fyrir íslenskt háskólasamfélag og ég hef lagt áherslu á það frá því að ég kom inn í ráðuneytið fyrir um hálfu ári að hagræðing megi aldrei vera meginmarkmið í þessari vinnu heldur verði hún að leiða til sterkari heildar sem getur mætt fjölbreyttari þörfum stúdenta og starfsfólks og veitt raunverulegt val um hvar fólk lærir, býr og hvar það starfar. Þetta er sem sagt ekki einungis stjórnskipulegt ferli heldur samfélagslegt tækifæri og þar vil ég undirstrika að þar þarf byggðafestuhlutverk skólanna áfram að leika mikilvægt hlutverk.

Hv. fyrirspyrjandi spyr jafnframt um hvort frekari sameiningar séu í undirbúningi. Við því get ég sagt já og vísa til þess sem ég sagði fyrr í ræðunni að ég ber vonir í brjósti um að háskólasamstæðan í kringum Háskóla Íslands muni eflast og stækka og við munum auðvitað reyna að greiða því leið.

Hv. fyrirspyrjandi spyr líka hvernig ég sjái fyrir mér framtíð háskólanáms utan höfuðborgarsvæðisins með tilliti til þessara sameiningaráforma. Sem ráðherra háskólamála en líka sem landsbyggðarþingmaður tel ég mikilvægt að áfram verði boðið upp á öflugt staðnám á háskólastigi líka á landsbyggðinni. Fjarnám getur verið góður kostur fyrir ýmsa, m.a. þá sem vilja stunda nám samhliða vinnu þar sem það hentar vel. En það er aukin eftirspurn hjá yngri nemendum sérstaklega eftir því að vera í staðnámi, og við megum ekki gera lítið úr því að háskólasamfélagið er alveg einstakt samfélag og fjarnám kemur ekki alltaf í staðinn fyrir það. Það er hins vegar ágætt að fólk geti stundað háskólanám í heimabyggð en við höfum líka boðið upp á aðstöðu til náms og próftöku hjá þekkingarsetrum á landsbyggðinni og þetta er allt ágætisviðbót inn í núverandi kerfi. (Forseti hringir.) — Ég held að ég verði bara að bíða þangað til þessarar umræðu er lokið til að bæta við.