156. löggjafarþing — 45. fundur,  19. maí 2025.

sameiningar háskóla.

11. mál
[17:26]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Ég vil eins og aðrir þakka fyrir góða umræðu. Ég tek nú bara að mestu undir með hv. fyrirspyrjanda og hæstv. ráðherra í þessari umræðu en mig langaði að koma aðeins inn á það að þetta er kannski tvíþætt hlutverk sem háskólakerfið hér á landi hefur. Það er annars vegar, eins og hæstv. ráðherra kom inn á, þessi samkeppni á alþjóðavísu, að við séum með öfluga og sterka háskóla sem sinna vissu grunnhlutverki, en svo þurfum við líka að horfa til þess að vera með fagháskóla sem kannski bregðast meira við atvinnuumhverfinu og búsetuumhverfi og fleiru sem hér er og þá er kannski ekki alltaf hægt að horfa á að það þurfi að vera einhver risastór eining eða sem uppfyllir allar ströngustu kröfur sem eru í hinni alþjóðlegu samkeppni. Ég held að við þurfum að hugsa um þetta í a.m.k. þessum tveimur áttum.