sameiningar háskóla.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hæstv. menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra kærlega fyrir sín svör við fyrirspurninni og sömuleiðis hv. þingmönnum Grími Grímssyni og Vilhjálmi Árnasyni. Ég tek því fagnandi að hæstv. ráðherra nefni einmitt áherslu á byggðafestu þegar þessi sameiningarvinna fer fram. Ég get klárlega tekið undir það sjónarmið sem hér kom fram að það séu kannski svolítið margir háskólar á Íslandi miðað við hvað við erum fá en tel að ég og hæstv. ráðherra séum svo sannarlega sammála um það að við þessa sameiningarvinnu, hvort sem er að fleiri háskólar renni inn í háskólasamstæðu eða með einhverjum öðrum hætti, sé haldið í uppbygginguna á akademísku umhverfi utan höfuðborgarsvæðisins og þeirri vinnu líka haldið áfram. Og eins og hæstv. ráðherra kom inn á þá snýst þetta að miklu leyti um námsframboð, að nemendur geti kosið að fara eitthvert annað en til Reykjavíkur til að sækja nám. Við þekkjum það t.d. á Akureyri að eftir að Háskólinn á Akureyri byrjaði að bjóða upp á tölvunarfræði í samstarfi við Háskólann í Reykjavík þá voru mjög margir sem byrjuðu strax þar í staðinn fyrir að flytja suður að sækja það nám og það gerði það síðan að verkum að fyrirtæki í tæknigeiranum á Akureyri og annars staðar höfðu kost á því að ráða nemendur sem höfðu farið þangað í nám. Svo snýst þetta náttúrlega líka um störf að einhverju leyti og líka að það er t.d. verið að rannsaka aðra hluti í Háskólanum á Akureyri en háskólunum á höfuðborgarsvæðinu. Þetta skiptir allt saman máli.
Ég þakka fyrir þessa umræðu og vonandi fáum við tækifæri aftur til að eiga hana þegar fram í sækir.