jafnlaunavottun.
Virðulegi forseti. Enn og aftur kem ég hér upp til að ræða óskapnaðinn sem jafnlaunavottunin er, geri enn eina atlöguna. Aldrei er góð vísa og allt það. Þrátt fyrir andstöðu hæstv. ráðherra á síðasta kjörtímabili hef ég glaðst yfir skárra viðhorfi hennar til breytinga á jafnlaunavottunarbákninu að undanförnu, gott ef ég hef ekki bara haft góð áhrif á hæstv. ráðherra. En ég varð síðan fyrir vonbrigðum þegar ég sá metnaðarlausar tillögur hagræðingarhóps hæstv. ríkisstjórnar um að taka bara lítil skref til að létta á jafnlaunavottun og ég held þess vegna áfram baráttunni ótrauð. Ég er búin að margfara yfir það að gögn sem ég hef togað upp úr stjórnvöldum sem óbreyttur þingmaður sýna það svart á hvítu að rannsóknir sýna engan mun á kynbundnum launamun milli þeirra sem hafa undirgengist þetta jafnlaunahúmbúkk og þeirra sem hafa ekki gert það. Ef við segjum sem svo að hugur Viðreisnar hafi verið góður þegar þau náðu í gegn þessu fyrsta og eina þingmáli sínu í fyrstu ríkisstjórninni þá er a.m.k. búið að sýna fram á það núna að það er ekki alltaf hugurinn sem gildir.
Ég spyr hæstv. ráðherra að því hvort hún ætli að bregðast við þessum upplýsingum sem hafa verið lagðar hér fram og hvort hún telji að tillögur hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar um að halda áfram jafnlaunavottun en fækka bara aðeins fyrirtækjum sem verða að undirgangast hana, gangi nógu langt. Og af því að það var ekkert hugsað út í kostnað atvinnulífsins og reyndar hins opinbera líka þegar jafnlaunavottun var lögfest þá spyr ég hvort hæstv. ráðherra muni beita sér fyrir því að skoða þennan kostnað sérstaklega og muni jafnvel beita sér fyrir því að draga úr þessum kostnaði.