jafnlaunavottun.
Virðulegur forseti. Já, við hljótum að taka því fagnandi að hæstv. dómsmálaráðherra er að taka á móti ábendingum, m.a. frá hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur hér fyrr í vetur og oft áður um það að við erum að gera allt of stífar kröfur á fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög í þessum efnum. Ég efa það ekki að markmiðið var göfugt og gott og hefur eflaust skilað árangri einhvers staðar. En það er kominn rúmur áratugur frá því að þetta var tekið í gagnið og fyrirtækjum, meðalstórum og öðrum, opinberum stofnunum og sveitarfélögum gjörsamlega ofbýður utanumhaldið og hversu íþyngjandi þetta kerfi er. Forsvarsmenn fyrirtækja margir hverjir sem telja sig vera að gera vel og hafa gert vel í því að hafa laun karla og kvenna og annarra jöfn eftir því sem hægt er og eftir því hvaða störf er að ræða (Forseti hringir.) — þeim finnst eins og þetta séu bara einhverjar árlegar kvaðir, miklar byrðar á hverju ári sem þau þurfa að undirgangast til að tékka í eitthvert box sem hið opinbera hefur falið þeim að tékka í.