156. löggjafarþing — 45. fundur,  19. maí 2025.

jafnlaunavottun.

303. mál
[17:41]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Það var áhugavert að hlusta á svar hæstv. ráðherra. Ég held að hæstv. ráðherra hafi nú slegið Norðurlandamet í hroka þegar hún fór yfir það að hv. þingmaður hefði nú ekki staðist próf í háskóla með þessum málflutningi. Hæstv. ráðherra hefur hafið undanhaldið, loksins. Það er vel. Það hefur verið bent á hvað eftir annað, m.a. af hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur, að þetta kostar mikið og er ekki að virka. Hér er hún að reyna að tala yfir okkur Sjálfstæðismönnum að við séum ekki fylgjandi jafnréttismálum þegar við erum að benda á hin augljósu sannindi. Það er líka önnur gerð af hroka. Ég vil vekja athygli á því að það eru allir sammála um það og það hefur svo sannarlega sýnt sig að það fyrirkomulag sem við erum með varðandi fæðingarorlof — hvenær var það sett á laggirnar? Jú, það var sett á laggirnar undir forystu Sjálfstæðisflokksins og það má halda langa ræðu um forgöngu Sjálfstæðismanna þegar kemur að jafnréttismálum. (Forseti hringir.) Þetta mál er ekki þannig og hæstv. ráðherra væri maður að meiri með því bara að gangast við því að þetta gekk ekki upp. Það kostar mikið. Það er ekki hægt að sýna hverju það skilar. (Forseti hringir.) Það er gott að undanhaldið er hafið en í staðinn fyrir að stíga einhver hænuskref í þessu þá væri auðvitað miklu betra að stíga skrefið til fulls, virðulegur forseti, og gera þetta valkvætt.