156. löggjafarþing — 45. fundur,  19. maí 2025.

jafnlaunavottun.

303. mál
[17:43]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Forseti. Við vitum öll hérna inni að þetta er ríkisstjórn yfirlætis en ég held að steininn hafi tekið úr þegar hæstv. dómsmálaráðherra sýndi slíkt yfirlæti áðan að annað eins hefur ekki sést. Hún fór mikinn í umræðu um Miðflokkinn. Þetta var eiginlega eins og þetta væri uppistand. (Dómsmrh.: Ég sagði ekki orð um Miðflokkinn. ) Ég áttaði mig á því … — Jú, í óundirbúnum fyrirspurnatíma áðan, þá sagðir þú mjög mikið. (Gripið fram í.) Nú hef ég skamman tíma þannig að ég verð að halda áfram. Málið er að þessi sami ráðherra er reyndar með uppistandara sem aðstoðarmann þannig að ég verð sennilega að hafa gaman af þessu og taka það jákvæða út úr því. Hæstv. ráðherra talaði um að Miðflokkurinn hefði ekki stutt hagræðingartillögur en ég kannast ekki við að neinar hagræðingartillögur hafi komið frá þessari ríkisstjórn og við erum ekki klappstýrur fyrir hæstv. ráðherra þegar hún boðar frumvörp og þess vegna vorum við ekki í þingsal þegar við erum bara hjartanlega sammála, við þurfum ekki að vera klappstýrur. Þess vegna kem ég að því að þetta regluverk, jafnlaunavottun, er íþyngjandi. Miðflokkurinn var á móti því og er þetta eitt af þeim frumvörpum sem hæstv. ráðherra telur gott og Miðflokkurinn studdi ekki.